Líðan kvenna sem bíða eftir brjóstnámi vegna krabbameins
Regína Ólafsdóttir, Svanheiður Lóa Rafnsdóttir, Ragnheiður Martha Jóhannesdóttir, Þorvaldur Jónsson, Þórdís Kjartansdóttir og Heiðdís Valdimarsdóttir
Sálfræðiritið, 2018 — 23. árgangur (bls. 7–18)
Útdráttur
Tilgangur: Árlega greinast um 210 konur með brjóstkrabbamein á Íslandi. Fyrsta meðferð við brjóst
krabbameini er oftast skurðaðgerð þar sem annaðhvort allt brjóstið er fjarlægt (brjóstnám) eða hluti þess.
Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna líðan og lífsgæði kvenna sem greinst hafa með brjóstkrabbamein
og bíða þess að gangast undir brjóstnám. Þetta hefur ekki verið kannað áður á Íslandi.
Aðferð: Spurningalistar, sem meta líðan og lífsgæði, voru afhentir konum sem biðu eftir brjóstnámi með eða
án samhliða uppbyggingaraðgerð á brjósti á tímabilinu september 2009–desember 2011 (meðferðarhópur)
og þeim boðið að taka þátt í rannsókn með því að svara spurningalistum um líðan sína. Spurningalistarnir
voru Hospital Anxiety Depression Scale (HADS), General Health Questionnaire (GHQ) og Quality of Life
Scale (QOLS). Af þeim 187 konum, sem var boðið að taka þátt, skiluðu 62 konur (33,2%) inn útfylltum
spurningalistum. Sömu spurningalistar voru sendir til 500 kvenna í aldursstöðluðum samanburðarhópi og
var svarhlutfall þeirra 39,6%.
Niðurstöður: Konur í meðferðarhópi voru kvíðnari en konur í samanburðarhópi: 16,9% kvenna í
meðferðarhópi skoruðu yfir klínískum viðmiðum kvíða á HADS-listanum og 7,7% kvenna í samanburðar
hópi. Vanlíðan var einnig hærri en 45,8% kvenna skoruðu yfir klínískum viðmiðum á GHQ-listanum en
aðeins 19,4% kvenna í samanburðarhópi. Eins áttu konur í meðferðarhópi erfiðara með svefn en 45,8%
kvenna, sem biðu eftir aðgerð, sögðust glíma við svefnvanda en einungis 13,3% í samanburðarhópi.
Umræða: Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að konur, sem nýlega hafa greinst með brjóstkrabbamein
og bíða eftir brjóstnámsaðgerð, séu kvíðnari auk þess að glíma við meiri vanlíðan og svefnvanda heldur
en konur í samanburðarhópi. Hlúa þarf vel að konum, sem nýlega hafa greinst með brjóstkrabbamein og
bíða eftir aðgerð, og aðstoða þær við að glíma við kvíða, vanlíðan og svefnvanda.
Efnisorð
brjóstkrabbamein
brjóstnám
uppbygging
líðan
svefnvandamál
Vísir að færslu í heimildaskrá skv. APA sniði
Regína Ólafsdóttir, Svanheiður Lóa Rafnsdóttir, Ragnheiður Martha Jóhannesdóttir, Þorvaldur Jónsson, Þórdís Kjartansdóttir og Heiðdís Valdimarsdóttir
(2018).
Líðan kvenna sem bíða eftir brjóstnámi vegna krabbameins.
Sálfræðiritið,
23, 7–18.
https://www.salfraediritid.is/articles/2018-issue-23-lidan-kvenna-sem-bida-eftir-brjostnami-vegna-krabbameins
Grein / texti í PDF skjali
PDF skjal opnast yfirleitt í nýjum flipa