Lotuofátskvarðinn Athugun á réttmæti og klínísku gildi kvarðans
Jóhanna Vigfúsdóttir, Helma Rut Einarsdóttir og Ingunn Hansdóttir
Sálfræðiritið, 2018 — 23. árgangur (bls. 35–52)
Útdráttur
Tilgangur rannsóknarinnar var að meta próffræðilega eiginleika Lotuofátskvarðans (e. Binge Eating
Scale) og tengsl hans við aðrar klínískar breytur (depurðareinkenni og lotugræðgi). Lotuofátskvarðinn er
16 atriða sjálfsmatslisti ætlað að meta vanda tengdan átköstum og hefur verið notaður til að skima fyrir
lotuofátsröskun hjá fólki sem glímir við offitu. Kvarðinn var lagður fyrir fimm hópa: þrjá hópa einstaklinga
í offitumeðferð (n=53), einstaklinga með lotugræðgi (n=12) og samanburðarhóp (n=26). Niðurstöður sýndu
að hlutfall lotuofátsröskunar meðal skjólstæðinga í offitumeðferð var 24,5%. Kvarðinn reyndist hafa góðan
innri áreiðanleika og styðja niðurstöður réttmæti túlkunar á niðurstöðum kvarðans. Skimunareiginleikar
Lotuofátskvarðans voru góðir (næmi 77% og sérhæfni 98%) og gefa vendigildi 24–25 besta samspil næmis
og sérhæfni. Niðurstöður sýna að próffræðilegir eiginleikar Lotuofátskvarðans eru viðunandi. Getur kvarðinn
því nýst í klínísku starfi hérlendis en mikilvægt er að hafa mælitæki með raunprófaða eiginleika til að
meta einkenni lotuofátsröskunar hjá þeim sem eru í offitumeðferð svo að bæta megi meðferðarárangur.
Efnisorð
lotuofátsröskun
offita
mælitæki
lotugræðgi
depurð
Vísir að færslu í heimildaskrá skv. APA sniði
Jóhanna Vigfúsdóttir, Helma Rut Einarsdóttir og Ingunn Hansdóttir
(2018).
Lotuofátskvarðinn Athugun á réttmæti og klínísku gildi kvarðans.
Sálfræðiritið,
23, 35–52.
https://www.salfraediritid.is/articles/2018-issue-23-lotuofatskvardinn-athugun-a-rettmaeti-og-klinisku-gildi-kvardans
Grein / texti í PDF skjali
PDF skjal opnast yfirleitt í nýjum flipa