Próffræðilegir eiginleikar BRIEF-listans og mat á stýrifærni barna með ADHD á Snillinganámskeiði
Dagmar Kr. Hannesdóttir, Freyr Halldórsson, Drífa Jenný Helgadóttir og Sigrún Þórisdóttir
Sálfræðiritið, 2018 — 23. árgangur (bls. 53–66)
Útdráttur
Mat á stýrifærni (e. executive function) er mikilvæg viðbót við greiningu á ADHD hjá börnum og
unglingum. Stýrifærni vísar meðal annars til þátta eins og vinnsluminnis, sjálfsstjórnar, tilfinningastjórnar
og skipulagsfærni. Tilgangur rannsóknarinnar var að meta próffræðilega eiginleika íslenskrar þýðingar á
BRIEF (e. Behavior Rating Inventory of Executive Function) meðal foreldra íslenskra grunnskólabarna. Tvær
samliggjandi rannsóknir voru framkvæmdar; annars vegar Rannsókn I þar sem athugaðir voru próffræðilegir
eiginleikar BRIEF-listans og framkvæmd staðfestandi þáttagreining þar sem foreldrar 600 barna í 4.–10.
bekk í sjö grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu svöruðu listanum. Hins vegar var framkvæmd Rannsókn II
þar sem BRIEF-listinn var notaður í hópi 8–11 ára barna með ADHD til að skoða breytingar fyrir og eftir
Snillinganámskeið sem þau tóku þátt í. Niðurstöður sýndu að áreiðanleiki og endurprófunaráreiðanleiki
íslenskrar þýðingar BRIEF-listans reyndist góður og samleitni réttmæti við sambærilega lista var gott.
Framkvæmd var staðfestandi þáttagreining þar sem notast var við ML-matsaðferð (e. maximum likelihood
estimation) og niðurstöður bornar saman við upprunalega bandaríska útgáfu listans. Niðurstöður sýndu að
gögnin féllu þokkalega að ætlaðri þáttauppbyggingu BRIEF-listans. Viðbótargreining var framkvæmd til
að varpa frekara ljósi á uppbyggingu listans. Gagnsemi BRIEF-listans var metin til að skoða breytingar á
stýrifærni í lok Snillinganámskeiðs. Einnig voru skoðaðar breytingar á ADHD-einkennum og kom fram
að foreldrar mátu athyglisbrestseinkenni minni eftir námskeiðið. BRIEF-listinn getur verið gagnlegt
mælitæki til að veita skilvirkari ráðgjöf og til að meta árangur meðferðar fyrir börn og unglinga með
frávik í hegðun, þroska og líðan.
Efnisorð
stýrifærni
börn og unglingar
ADHD
BRIEF
Snillingarnir
Vísir að færslu í heimildaskrá skv. APA sniði
Dagmar Kr. Hannesdóttir, Freyr Halldórsson, Drífa Jenný Helgadóttir og Sigrún Þórisdóttir
(2018).
Próffræðilegir eiginleikar BRIEF-listans og mat á stýrifærni barna með ADHD á Snillinganámskeiði.
Sálfræðiritið,
23, 53–66.
https://www.salfraediritid.is/articles/2018-issue-23-proffraedilegir-eiginleikar-brief-listans-og-mat-a-styrifaerni-barna-med-adhd-a-snillinganamskeidi
Grein / texti í PDF skjali
PDF skjal opnast yfirleitt í nýjum flipa