Notkun berskjöldunar meðal sálfræðinga á Íslandi fyrir börn með áráttu- og þráhyggjuröskun
Aron Eydal Sigurðarson, Sindri Lárusson, Ástrós Elma Sigmarsdóttir, Hrafnkatla Agnarsdóttir og Guðmundur Skarphéðinsson
Sálfræðiritið, 2019 — 24. árgangur (bls. 63–71)
Útdráttur
Áráttu- og þráhyggjuröskun (ÁÞR) einkennist af áráttuhegðun og þráhyggjuhugsunum. Þráhyggja
lýsir sér í óþægilegum, uppáþrengjandi og óviðeigandi hugsunum sem valda vanlíðan og kvíða.
Árátta fylgir yfirleitt þráhyggju og einkennist af endurteknum athöfnum sem virka sem markviss
leið til þess að draga úr óþægindum sem þráhyggjuhugsanirnar valda. Hugræn atferlismeðferð
með berskjöldun og svarhömlun er fyrsti kostur sem meðferð við ÁÞR. Þessi rannsókn gengur
út á að kanna viðhorf sálfræðinga á Íslandi til berskjöldunar við ÁÞR og kanna hve mikið og
hvernig þeir beita berskjöldunarmeðferðinni þegar þeir vinna með börnum og unglingum með
ÁÞR. Stuðst var við erlendan spurningalista sem var þróaður til að athuga meðferðaraðferðir
sálfræðinga við kvíða og ÁÞR. Spurningalistinn var þýddur yfir á íslensku og sendur sálfræðingum
í Sálfræðingafélagi Íslands og einungis þeir sem höfðu meðhöndlað ÁÞR barns síðastliðið ár voru
þátttakendur, alls 26. Rannsóknin leiddi í ljós að almennt er viðhorf sálfræðinga á Íslandi jákvætt
til meðferðarinnar. Allir þátttakendur rannsóknarinnar sögðust nota berskjöldun í meðferð við
ÁÞR og eyddu 46,2% þátttakenda meira en 61% tíma meðferðar í berskjöldun. Í ljós kom þó að
ekki voru allir að nota bestu mögulegu aðferðir berskjöldunar í sinni meðferð en rúm 43% sögðust
ekki reyna að takmarka truflanir í æfingum, það er að segja truflanir í umhverfinu sem gætu komið
niður á árangri meðferðarinnar. Þetta gerir það að verkum að börnin eru ekki að fá bestu mögulegu
meðferðina vegna mögulegra truflana. Því þyrfti að auka kennslu og þjálfun í notkun berskjöldunar
svo að sálfræðingar beiti henni rétt til að börn með ÁÞR á Íslandi eigi mestan möguleika á bata.
Efnisorð
þráhyggja
árátta
berskjöldun
svarhömlun
Vísir að færslu í heimildaskrá skv. APA sniði
Aron Eydal Sigurðarson, Sindri Lárusson, Ástrós Elma Sigmarsdóttir, Hrafnkatla Agnarsdóttir og Guðmundur Skarphéðinsson
(2019).
Notkun berskjöldunar meðal sálfræðinga á Íslandi fyrir börn með áráttu- og þráhyggjuröskun.
Sálfræðiritið,
24, 63–71.
https://www.salfraediritid.is/articles/2019-issue-24-notkun-berskjoldunar-medal-salfraedinga-a-islandi-fyrir-born-med-arattu-og-thrahyggjuroskun
Grein / texti í PDF skjali
PDF skjal opnast yfirleitt í nýjum flipa