Staða rannsókna á heildstæðum stuðningi við jákvæða hegðun (PBS) í grunnskólum á Íslandi
Auður Sif Kristjánsdóttir og Bergljót Gyða Guðmundsdóttir
Sálfræðiritið, 2019 — 24. árgangur (bls. 7–22)
Útdráttur
Erfið hegðun nemenda í skólum er algengur vandi sem erfitt getur verið að takast á við. Heildstæður
stuðningur við jákvæða hegðun (e. positive behavior support; PBS) er alhliða stuðningskerfi sem
samanstendur af mismunandi úrræðum á þremur þrepum þar sem tekið er tillit til ólíkrar hegðunar
nemenda og þeim veitt íhlutun í samræmi við þarfir hvers og eins. Rannsóknir hafa sýnt að PBS
dregur meðal annars úr hegðunarvanda og bætir námsástundun. Á Íslandi hafa verið gerðar nokkrar
rannsóknir á árangri af innleiðingu PBS í grunnskólum. Markmið þessarar yfirlitsrannsóknar var
að kanna hvað niðurstöður þeirra rannsókna sýndu og varpa þannig skýrara ljósi á næstu skref
í rannsóknum á PBS á Íslandi. Í heild virðist PBS yfirleitt áhrifaríkt, en þó eru ákveðnir vankantar
á innleiðingunni í sumum tilfellum. Sömuleiðis þarf að gera fleiri og fjölbreyttari rannsóknir á
Íslandi, sérstaklega á miðþrepi kerfisins.
Efnisorð
heildstæður stuðningur við jákvæða hegðun
PBS
grunnskólar
hegðun
hegðunarvandi
Vísir að færslu í heimildaskrá skv. APA sniði
Auður Sif Kristjánsdóttir og Bergljót Gyða Guðmundsdóttir
(2019).
Staða rannsókna á heildstæðum stuðningi við jákvæða hegðun (PBS) í grunnskólum á Íslandi.
Sálfræðiritið,
24, 7–22.
https://www.salfraediritid.is/articles/2019-issue-24-stada-rannsokna-a-heildstaedum-studningi-vid-jakvaeda-hegdun-pbs-i-grunnskolum-a-islandi
Grein / texti í PDF skjali
PDF skjal opnast yfirleitt í nýjum flipa