Endurtekið þunglyndi Hvað einkennir það og hversu árangursrík er meðferð og forvörn gegn því?

Ragnar P. Ólafsson
Sálfræðiritið, 2020 — 25. árgangur (bls. 7–23)

Útdráttur

Oft er skrifað að þunglyndi sé algeng og alvarleg geðröskun sem kosti samfélagið mikið. Þunglyndi er þó ekki einsleitt fyrirbæri. Þótt meiri athygli hafi beinst að stökum lotum þunglyndis og meðferð í bráðafasa hefur áhugi beinst í auknum mæli að því að hluti fólks upplifir endurteknar þunglyndislotur yfir ævina. Í þessari grein er lýst einkennum alvarlegs þunglyndis (e. major depressive disorder) hjá fullorðnum, sem hrjáir 15–18% fólks einhvern tíma ævinnar. Um helmingur upplifir þunglyndi aftur, oftast innan fimm ára. Hætta á nýrri lotu eykst með auknum lotufjölda en meðalfjöldi lota í úrtökum fólks með endurtekið þunglyndi er á bilinu fimm til níu. Í greininni er fjallað er um lýðfræðilega og sálfélagslega þætti sem tengjast þunglyndi og endurtekningu þess. Einnig er fjallað um árangur tveggja helstu meðferðarinngripa, lyfjameðferðar og hugrænnar atferlismeðferðar (HAM), ásamt árangri forvarnarmiðaðrar (ForHAM) og núvitundarmiðaðrar (NúHAM) hugrænnar atferlismeðferðar. Í lok greinarinnar er leitast við að draga saman atriði úr rannsóknum sem gætu verið gagnleg fyrir sálfræðinga að hafa í huga sem koma að mati og meðferð þunglyndis. Nokkur atriði eru einnig rædd sem geta verið mikilvæg í áframhaldandi rannsóknum á þunglyndi og þróun meðferðar við því.

Efnisorð

þunglyndi endurtekið þunglyndi fullorðnir meðferð forvörn

Vísir að færslu í heimildaskrá skv. APA sniði

Ragnar P. Ólafsson (2020). Endurtekið þunglyndi Hvað einkennir það og hversu árangursrík er meðferð og forvörn gegn því?. Sálfræðiritið, 25, 7–23.
https://www.salfraediritid.is/articles/2020-issue-25-endurtekid-thunglyndi-hvad-einkennir-thad-og-hversu-arangursrik-er-medferd-og-forvorn-gegn-thvi

Grein / texti í PDF skjali

PDF skjal opnast yfirleitt í nýjum flipa

Opna PDF