Hvað felur nafnið í sér? Samanburður á umfangi og innihaldi HAM hóp- og einstaklingsmeðferðar hjá fólki með endurtekið þunglyndi

Ragnar P. Ólafsson, Anna G. Guðmundsdóttir, Nína B. Arnardóttir, Sigrún E. Arnardóttir, Sólveig A. Daníelsdóttir, Kristín H. Gísladóttir, Styrkár Hallsson, Jóhanna M. Jóhannsdóttir, Páll H. Jónsson, Íris Sverrisdóttir, Sveindís A. Þórhallsdóttir, Halldór Jónsson, Ívar Snorrason og Kristján H. Hjartarson
Sálfræðiritið, 2021 — 26. árgangur (bls. 7–24)

Útdráttur

Hugræn atferlismeðferð (HAM) er kjörmeðferð samkvæmt klínískum leiðbeiningum um meðferð þunglyndis. Þótt meðferðin hafi sýnt gildi sitt í vísindarannsóknum og vísbendingar séu um að ná megi sambærilegum árangri úti á vettvangi þar sem dagleg geðheilbrigðisþjónusta er veitt, er lítið vitað hvernig meðferð er í raun veitt í slíkum náttúrulegum aðstæðum. Upplýsingar um það eru mikilvægar við mat á gæðum þjónustu og hvernig sálfræðingum tekst að veita meðferðina í því umhverfi sem sálfræðimeðferð er búin hér á landi. Markmið rannsóknarinnar var að skoða meðferðarsögu fólks með endurtekið þunglyndi með áherslu á umfang og innihald síðustu HAM-meðferðar sem fólk hafði fengið. Gögn voru greind frá alls 53 þátttakendum (meðalaldur 35,2 ár, Sf=10,0), þar af 45 konur, með endurtekið þunglyndi og höfðu að minnsta kosti þrjár fyrri þunglyndislotur að baki. Innihald síðustu HAM hóp- eða einstaklingsmeðferðar var metið í meðferðarsöguviðtali þar sem m.a. var spurt út í umfang (fjölda skipta), þéttni (skipti á viku) og innihald meðferðar sem fólst í mati á 14 lykilþáttum HAM við þunglyndi. Niðurstöður sýndu að síðasta meðferð fólks var yfirleitt stutt og fór oftast fram vikulega (hópmeðferð) eða aðra hverja viku (einstaklingsmeðferð). Innihald hóp- og einstaklingsmeðferðar var sambærilegt varðandi vissa þætti (t.d. vinna með tengsl aðstæðna, hugsana og tilfinninga, hugrænt endurmat, atferlisvirkjun) en aðra ekki(kortlagning vanda og henni deilt með skjólstæðingi, dagskrá sett í tíma, fræðsluefni). Niðurstöðurnar benda til að HAM-meðferð sem fólk með endurtekið þunglyndi hefur fengið sé ekki í samræmi við klínískar leiðbeiningar og alvarleika. Huga þarf bæði að kostnaðarumhverfi sálfræðimeðferðar og mögulegri þjálfun og fræðslu fagaðila til að tryggja að fólki með þunglyndi standi gagnreynd HAM-meðferð til boða – þeim sem það kjósa.

Efnisorð

hugræn atferlismeðferð þunglyndi innihald meðferðar náttúrulegar aðstæður klínískar leiðbeiningar

Vísir að færslu í heimildaskrá skv. APA sniði

Ragnar P. Ólafsson, Anna G. Guðmundsdóttir, Nína B. Arnardóttir, Sigrún E. Arnardóttir, Sólveig A. Daníelsdóttir, Kristín H. Gísladóttir, Styrkár Hallsson, Jóhanna M. Jóhannsdóttir, Páll H. Jónsson, Íris Sverrisdóttir, Sveindís A. Þórhallsdóttir, Halldór Jónsson, Ívar Snorrason og Kristján H. Hjartarson (2021). Hvað felur nafnið í sér? Samanburður á umfangi og innihaldi HAM hóp- og einstaklingsmeðferðar hjá fólki með endurtekið þunglyndi. Sálfræðiritið, 26, 7–24.
https://www.salfraediritid.is/articles/2021-issue-26-hvad-felur-nafnid-i-ser-samanburdur-a-umfangi-og-innihaldi-ham-hop-og-einstaklingsmedferdar-hja-folki-med-endurtekid-thunglyndi

Grein / texti í PDF skjali

PDF skjal opnast yfirleitt í nýjum flipa

Opna PDF