Hvatningarleikur til bekkjarstjórnunar: Áhrif á námsástundun og hegðun nemenda

Jónína Klara Pétursdóttir, Anna-Lind Pétursdóttir og Bergljót Gyða Guðmundsdóttir
Sálfræðiritið, 2022 — 27. árgangur (bls. 7–24)

Útdráttur

Markmið þessarar rannsóknar var að meta áhrif táknstyrkjaútgáfu Hvatningarleiksins (e. Good Behavior Game) á hegðun og námsástundun nemenda á yngsta stigi grunnskóla. Þátttakendur voru fimm stúlkur og sjö drengir á aldrinum 7-11 ára í grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu með langa sögu um hegðunarerfiðleika. Óæskileg hegðun (ráp, truflandi hljóð, neikvætt orðbragð og ýgi) og námsástundun var mæld með bilskráningu í kennslustundum hjá umsjónarkennara. Margfalt grunnskeiðssnið og ABAB-vendisnið sýndi að með Hvatningarleiknum dró úr óæskilegri hegðun samhliða því sem námsástundun jókst. Að meðaltali kom óæskileg hegðun fyrir í 23% áhorfsbila á grunnskeiði en í 0,1% áhorfsbila meðan á leiknum stóð (jafngildir um 100% lækkun). Á sama tíma jókst námsástundun úr 57% í 94% áhorfsbila (64% aukning að meðaltali). Framfarir þátttakenda í hegðun og námsástundun héldust þó að Hvatningarleikurinn væri lengdur úr 10 mínútum í 15 og loks í 20 mínútur. Í spurningakönnun í lok rannsóknar tjáðu allir þátttakendur að þeim þætti Hvatningarleikurinn skemmtilegur, að hann hjálpaði bekknum þeirra að læra og að þeir myndu vilja halda áfram í leiknum. Niðurstöður benda til að Hvatningarleikurinn geti gagnast kennurum við bekkjarstjórnun, allavega til að auka námsástundun og draga úr óæskilegri hegðun meðan á leiknum stendur.

Efnisorð

hvatningarleikurinn bekkjarstjórnun hegðunarvandi námsástundun forvarnir

Vísir að færslu í heimildaskrá skv. APA sniði

Jónína Klara Pétursdóttir, Anna-Lind Pétursdóttir og Bergljót Gyða Guðmundsdóttir (2022). Hvatningarleikur til bekkjarstjórnunar: Áhrif á námsástundun og hegðun nemenda. Sálfræðiritið, 27, 7–24.
https://www.salfraediritid.is/articles/2022-issue-27-hvatningarleikur-til-bekkjarstjornunar-ahrif-a-namsastundun-og-hegdun-nemenda

Grein / texti í PDF skjali

PDF skjal opnast yfirleitt í nýjum flipa

Opna PDF