Próffræðilegir eiginleikar íslenskrar þýðingar GAD-7 í klínísku úrtaki
Daney Harðardóttir, Vaka Vésteinsdóttir, Ragnhildur Lilja Ásgeirsdóttir, Hafrún Kristjánsdóttir og Fanney Þórsdóttir
Sálfræðiritið, 2022 — 27. árgangur (bls. 25–38)
Útdráttur
General Anxiety Disorder Scale (GAD-7) er sjö atriða sjálfsmatskvarði sem notaður er til að skima
fyrir almennri kvíðaröskun og meta alvarleika kvíðaeinkenna. Prófanir á erlendum útgáfum GAD-7
benda flestar til þess að mælingar með kvarðanum séu áreiðanlegar en þáttabygging hans virðist
ekki stöðug í ólíkum úrtökum og sértækni hefur einnig reynst ófullnægjandi. Markmið rannsóknar-
innar var að kanna próffræðilega eiginleika íslenskrar þýðingar GAD-7 í klínísku úrtaki. Leitandi
þáttagreining var notuð til að meta þáttabyggingu íslenskrar þýðingar GAD-7, auk þess sem
innri áreiðanleiki íslenskrar þýðingar kvarðans var metinn. Gögn frá 266 sjúklingum sem leituðu
til heilsugæslustöðva (188 konum og 38 körlum) og voru kvíðnir og/eða þunglyndir samkvæmt
klínísku mati voru notuð. Innri áreiðanleiki var góður ωt = 0,90 en meðalskor kvarðans var lágt
og einnig hlutfall þeirra sem greindust kvíðnir. Samkvæmt leitandi þáttagreiningu skýrði einn
þáttur best fylgni á milli atriða GAD-7 en þátturinn skýrði 57% af heildarbreytileika fylgnifylkisins.
Þáttahleðslur allra atriða voru ásættanlegar eða á bilinu 0,53 til 0,87. Fyrstu niðurstöður á próffræðilegum eiginleikum íslenskrar þýðingar GAD-7 lofa góðu um gagnsemi listans sem mælitæki
fyrir kvíðaeinkenni hér á landi en sýna einnig að þörf er á lagfæringum og frekari rannsóknum.
Efnisorð
GAD-7
próffræðilegir eiginleikar
íslensk útgáfa
kvíði
klínískt úrtak
Vísir að færslu í heimildaskrá skv. APA sniði
Daney Harðardóttir, Vaka Vésteinsdóttir, Ragnhildur Lilja Ásgeirsdóttir, Hafrún Kristjánsdóttir og Fanney Þórsdóttir
(2022).
Próffræðilegir eiginleikar íslenskrar þýðingar GAD-7 í klínísku úrtaki.
Sálfræðiritið,
27, 25–38.
https://www.salfraediritid.is/articles/2022-issue-27-proffraedilegir-eiginleikar-islenskrar-thydingar-gad-7-i-klinisku-urtaki
Grein / texti í PDF skjali
PDF skjal opnast yfirleitt í nýjum flipa