Réttmætisathugun á íslensku útgáfu HEXACO-60
Emma E. Evudóttir og Guðmundur T. Heimisson
Sálfræðiritið, 2022 — 27. árgangur (bls. 49–60)
Útdráttur
HEXACO persónuleikalíkanið gerir ráð fyrir að persónuleika sé hægt að útskýra með sex
persónuleikaþáttum. Í þessari rannsókn voru próffræðilegir eiginleikar íslensku útgáfu persónuleikaprófsins HEXACO-60 athugaðir með staðfestandi þáttagreiningu. Fylgni var einnig könnuð á
milli persónuleikaþátta HEXACO-60 innbyrðis, ásamt því að tengsl persónuleikaþátta við aldur
og kyn voru skoðuð. Þátttakendur voru 319 talsins, frá 18 ára aldri. Innra samræmi undirþátta og
prófsins í heild var ásættanlegt. Líkanið passaði vel samkvæmt RMSEA og SRMR mælitölunum,
en síður samkvæmt kí-kvaðrat, CFI og TLI. Þáttahleðslur voru í veikari kantinum; minna en helmingur atriða náði hleðslu ≥ 0,50. Nokkur munur var á styrkleika þáttahleðslna milli undirkvarða
prófsins. Misvísandi niðurstöður á mátun líkansins má meðal annars skýra með fjölda atriðapara
með fylgni á milli villuþátta, ásamt atriðum sem hlaða á fleiri þætti en þann sem þeim var ætlað
að mæla. Mælt er með endurskoðun á að minnsta kosti hluta íslenskrar útgáfu HEXACO-60, en
ekki er mælt gegn notkun á prófinu í núverandi mynd, með viðeigandi fyrirvörum í hverju tilfelli.
Efnisorð
persónuleiki
réttmæti
staðfestandi þáttagreining
HEXACO
sex þátta líkan
Vísir að færslu í heimildaskrá skv. APA sniði
Emma E. Evudóttir og Guðmundur T. Heimisson
(2022).
Réttmætisathugun á íslensku útgáfu HEXACO-60.
Sálfræðiritið,
27, 49–60.
https://www.salfraediritid.is/articles/2022-issue-27-rettmaetisathugun-a-islensku-utgafu-hexaco-60
Grein / texti í PDF skjali
PDF skjal opnast yfirleitt í nýjum flipa