Siðanefnd Sálfræðingafélags Íslands: Hlutverk nefndarinnar og erindi til hennar á árunum 1995-2022
María K. Jónsdóttir, Ingibjörg Markúsdóttir, Guðrún Oddsdóttir, Hörður Þorgilsson og Matthías Matthíasson
Sálfræðiritið, 2022 — 27. árgangur (bls. 39–48)
Útdráttur
Hér er gefið yfirlit yfir kvartanir sem bárust siðanefnd SÍ (SSÍ) árin 1995 – 2022. Alls bárust 81 tæk
erindi vegna hugsanlegs brots félaga í SÍ á siðareglum (kvensálfræðingar = 50,6% og karlar =
49,4%). Árlega var heildarfjöldi mála til SSÍ á bilinu 0 – 8 og vörðuðu 83,7% þeirra sálfræðinga á
höfuðborgarsvæðinu. Meirihluti (72%) varðaði sjálfstætt starfandi sálfræðinga. Flest erindi komu
frá skjólstæðingum eða foreldrum þeirra (30,4%), foreldrum í umgengnis- og forræðisdeilum
(29,3%) svo og sálfræðingum eða öðrum fagfólki (25%). SSÍ felldi úrskurð í 42 af 81 málum á árunum 1995-2022. Niðurstaða var að siðareglur hefðu verið brotnar í 71,4% tilfella (n=30). Brotin
voru talin minniháttar í 43,4% tilvika, alvarleg í 46,7% tilvika og mjög alvarleg, þannig að vísa
þurfti málum til landlæknis og/eða lögreglu, í 10% tilvika. Fimmtán erindi (18,5%) komu aldrei til
afgreiðslu af ýmsum ástæðum (t.d. dregin til baka, gögn bárust ekki), 22 (27%) voru felld niður að
lokinni skoðun og einu var vísað beint til lögreglu. Eitt mál bíður afgreiðslu. Fjöldi erinda á hverja
100 sálfræðinga virðist svipaður og getið er um í nýlegri rannsókn í Ástralíu þar sem hlutfallið
var 1,4/100 (Walton o.fl., 2020) á móti 1,18 í gögnum SSÍ (meðaltal 2010 – 2021). Miðað við fjölda
sálfræðinga í Norska sálfræðingafélaginu, sem eru um 10 þúsund, berast að jafnaði fleiri erindi
til SSÍ. Fjöldi erinda virðist ekki hafa aukist umfram fjölgun félagsmanna í SÍ. Meiri upplýsingar
vantar til að svara af hverju hlutfallslega fleiri kvartanir beinast að karlkynssálfræðingum þrátt
fyrir að þeir séu færri en konur í SÍ.
Efnisorð
Siðanefnd SÍ
siðavandi
siðareglur
brot á siðareglum
erindi til siðanefndar
Vísir að færslu í heimildaskrá skv. APA sniði
María K. Jónsdóttir, Ingibjörg Markúsdóttir, Guðrún Oddsdóttir, Hörður Þorgilsson og Matthías Matthíasson
(2022).
Siðanefnd Sálfræðingafélags Íslands: Hlutverk nefndarinnar og erindi til hennar á árunum 1995-2022.
Sálfræðiritið,
27, 39–48.
https://www.salfraediritid.is/articles/2022-issue-27-sidanefnd-salfraedingafelags-islands-hlutverk-nefndarinnar-og-erindi-til-hennar-a-arunum-1995-2022
Grein / texti í PDF skjali
PDF skjal opnast yfirleitt í nýjum flipa