Staðfestandi þáttagreining á foreldraútgáfu Spurninga um styrk og vanda (SDQ) í úrtaki grunnskólabarna

Örnólfur Thorlacius
Sálfræðiritið, 2023 — 28. árgangur (bls. 39–55)

Útdráttur

Þáttabygging og áreiðanleiki heildartalna matskvarðans Spurningar um styrk og vanda (the Strengths and Difficulties Questionnaire, SDQ) var athugaður í almennu úrtaki mæðra (N = 1532) 6-12 ára barna um land allt. Sex þáttalíkön voru prófuð með staðfestandi þáttagreiningu og borin saman við upprunalegt fimm þátta líkan SDQ. Það líkan sem féll best að gögnunum var hliðarþáttalíkan (e. bifactor model) þar sem tveir breiðir og almennir þættir, Úthverfur vandi og Innhverfur vandi, skýrðu sameiginlega dreifingu atriða þáttanna Hegðunarvandi og Ofvirkni annars vegar og Tilfinningavandi og Samskiptavandi hins vegar. Líkanið innihélt einnig þáttinn Félagshæfni og aðferðarþátt (e. method factor) sem gerði grein fyrir áhrifum þess að hluti atriða SDQ er með jákvæðu orðalagi. Niðurstöður gáfu til kynna viðunandi innra samræmi almennu þáttanna Úthverfur vandi og Innhverfur vandi (ωH = 0,62 og 0,60; α = 0,82 og 0,88) og báðir þættirnir skýrðu ásættanlegt hlutfall dreifingar atriða. Þegar búið var að skilja að sameiginlega skýrða dreifingu almennu þáttanna höfðu aðeins tveir upprunalegir þættir SDQ, Ofvirkni og Tilfinningavandi, nógu góða eiginleika til að réttlæta megi túlkun þeirra. Eiginleikar þáttanna Hegðunarvandi, Samskiptavandi og Félagshæfni voru aftur á móti óviðunandi og er það í samræmi við erlendar rannsóknir. Flest jákvætt orðuð atriði SDQ voru undir meiri áhrifum aðferðarþáttarins en upprunalegra þátta listans og virðist það valda skekkjum í matstækinu. Á grundvelli niðurstaðna rannsóknarinnar er mælt með því að breiðu þættirnir Úthverfur vandi og Innhverfur vandi séu túlkaðir fremur en upprunalegir þættir SDQ þegar foreldraútgáfa listans er lögð fyrir í almennum úrtökum hérlendis.

Efnisorð

SDQ atferlislistar börn og unglingar mat foreldra staðfestandi þáttagreining.

Vísir að færslu í heimildaskrá skv. APA sniði

Örnólfur Thorlacius (2023). Staðfestandi þáttagreining á foreldraútgáfu Spurninga um styrk og vanda (SDQ) í úrtaki grunnskólabarna. Sálfræðiritið, 28, 39–55.
https://www.salfraediritid.is/articles/2023-issue-28-stadfestandi-thattagreining-a-foreldrautgafu-spurninga-um-styrk-og-vanda-sdq-i-urtaki-grunnskolabarna

Grein / texti í PDF skjali

PDF skjal opnast yfirleitt í nýjum flipa

Opna PDF