„Að þjálfa þjálfann“ Hvernig færist þekking og færni á milli starfsfólks?

Azra Crnac, Felix Högnason og Karl F. Gunnarsson
Sálfræðiritið, 2024 — 29. árgangur (bls. 57–75)

Útdráttur

Atferlismiðuð færniþjálfun er árangursrík aðferð til að þjálfa upp færni hjá fjölbreyttum hópi fólks en getur verið tímafrek fyrir yfirmenn á fjölmennum vinnustöðum. Hægt er að beita píramídaþjálfun í slíkum tilfellum. Í píramídaþjálfun er starfsmönnum kennt tvenns konar færni: markhegðun sem yfirmenn vilja að þeir tileinki sér og færnin að þjálfa samstarfsmenn í sömu markhegðun með atferlismiðaðri færniþjálfun. Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna hagnýtingu atferlismiðaðrar píramídaþjálfunar til að kenna starfsfólki færnimiðuð boðskipti. Rannsóknin beindist að þremur spurningum: (1) hvort munur væri á nákvæmni í framkvæmd þjálfunar milli þrepa píramídans, (2) hvort þjálfuð færni viðhaldist milli þátttakenda og (3) hvort þátttakendur gætu beitt færninni í raunaðstæðum með barni eftir þjálfun. Þátttakendur voru sex starfsmenn og starfsnemar í sérskóla og eitt barn í færnimiðaðri boðskiptaþjálfun. Notað var margfalt grunnskeiðssnið með stikkprufum. Niðurstöður sýndu að nákvæmni í framkvæmd þjálfunar var að meðaltali 93% yfir alla þátttakendur. Frammistaða í boðskiptaþjálfun var að meðaltali 98% rétt og í raunaðstæðum með nemanda var framkvæmdin að meðaltali 96% rétt. Niðurstöðurnar benda til að atferlismiðuð píramídaþjálfun sé áhrifarík og hagkvæm leið til að þjálfa starfsfólk í sannreyndum kennsluaðferðum, sérstaklega þegar þarf að dreifa ábyrgð og auka skilvirkni í þjálfun nýs starfsfólks.

Efnisorð

atferlismiðuð píramídaþjálfun færnimiðuð boðskipti þjálfun starfsfólks í sérskólum

Vísir að færslu í heimildaskrá skv. APA sniði

Azra Crnac, Felix Högnason og Karl F. Gunnarsson (2024). „Að þjálfa þjálfann“ Hvernig færist þekking og færni á milli starfsfólks?. Sálfræðiritið, 29, 57–75.
https://www.salfraediritid.is/articles/2024-issue-29-ad-thjalfa-thjalfann-hvernig-faerist-thekking-og-faerni-a-milli-starfsfolks

Grein / texti í PDF skjali

PDF skjal opnast yfirleitt í nýjum flipa

Opna PDF