Einkenni matvendni meðal barna með og án taugaþroskaraskana
Sigrún Þorsteinsdóttir, Urður Njarðvík og Anna Sigríður Ólafsdóttir
Sálfræðiritið, 2025 — 30. árgangur (bls. 35–47)
Útdráttur
Matvendni getur haft margvísleg áhrif á heilsu barna og meðal annars leitt til næringarskorts og
meltingarvanda en getur einnig valdið streitu á heimilum. Þekkt er að börn með taugaþroskaraskanir (til dæmis raskanir á einhverfurófi og athyglisbrest með og án ofvirkni (ADHD)) eru líklegri
til að vera matvönd en börn án þessara raskana en lítið er vitað um matvendni íslenskra barna.
Markmið rannsóknarinnar var að meta einkenni matvendni hjá þátttakendum í Bragðlaukaþjálfun
(íslenskt meðferðarúrræði við matvendni barna með og án taugaþroskaraskana). Rannsóknin náði
til 8-12 ára barna (n=190) en foreldrar svöruðu skimunarlista fyrir þátttöku í Bragðlaukaþjálfun, og
spurningalista um Matarvenjur barna og matvendni. Staðhæfingar voru flokkaðar í átta yfirlokka
sem vörðuðu matarvenjur, skynjun og rútínur. Ríflega helmingur þátttakenda voru drengir (56,3%)
og var meðalaldur barnanna 9 ár. Mæður voru í meirihluta foreldra (94,2%). Rúmlega þriðjungur
barnanna (39%) var með taugaþroskaröskun (ADHD, einhverfu eða bæði). Tæplega helmingur
(49%) barnanna var með einhæft fæðuval (borðar færri en 10 fæðutegundir) og var hlutfallið hærra
hjá börnum með taugaþroskaraskanir (59%) en án (43%), (χ2(1, N=190)=4,83, p=0,03). Meirihluti
(91%) barna með taugaþroskaraskanir hafnaði nýjum fæðutegundum (fæðunýfælni) en 73% barna
án taugaþroskaraskana, (χ2(1, N=190)=9,98, p<0,01). Svipaðar niðurstöður mátti sjá fyrir aðrar
staðhæfingar. Aðeins ein staðhæfing sýndi hærra hlutfall fyrir börn án taugaþroskaraskana (30%)
en með (15%); „Barnið mitt hlakkar mikið til þess að borða”, (χ2(1, N=189)=5,30, p=0,02). Lítið er
vitað um einkenni matvendni barna á Íslandi og veitir rannsóknin mikilvæga innsýn í einkennin.
Niðurstöður sýndu hærra hlutfall á einkennum matvendni hjá börnum með taugaþroskaraskanir
á flestum þáttum sem skoðaðir voru. Brýnt er að skoða nánar matvendni barna á Íslandi svo
heilbrigðisstarfsfólk og foreldrar fái betri innsýn í einkenni og úrræði.
Efnisorð
einhverfurófsraskanir
ADHD
taugaþroskaraskanir
matvendni
matarvenjur
Vísir að færslu í heimildaskrá skv. APA sniði
Sigrún Þorsteinsdóttir, Urður Njarðvík og Anna Sigríður Ólafsdóttir
(2025).
Einkenni matvendni meðal barna með og án taugaþroskaraskana.
Sálfræðiritið,
30, 35–47.
https://www.salfraediritid.is/articles/2025-issue-30-einkenni-matvendni-medal-barna-med-og-an-taugathroskaraskana
Grein / texti í PDF skjali
PDF skjal opnast yfirleitt í nýjum flipa