Frumathugun á fyrstu þýðingu DIAMOND geðgreiningarviðtalsins og DIAMOND skimunarlistans fyrir fullorðna

Ragnar P. Ólafsson, Þórður Ö. Arnarson, Brynjar Halldórsson, Erla B. Birgisdóttir, Halla Ó. Ólafsdóttir, Heiða R. Guðmundsdóttir, Nína B. Arnarsdóttir, Pétur Tyrfingsson, Solveig E. Jónsdóttir og Sigurður Viðar
Sálfræðiritið, 2025 — 30. árgangur (bls. 18–34)

Útdráttur

DIAMOND geðgreiningarviðtalið (Diagnostic Interview for Anxiety, Mood, and Obsessive-Complusive and Related Disorders) er hálfstaðlað viðtal til að meta viðmið alls 35 geðgreininga hjá fullorðnum samkvæmt greiningarviðmiðum DSM-5 greiningarkerfisins. Skimunarlisti fylgir viðtalinu sem hægt er að nota til að skima fyrir einkennum þeirra geðraskana sem metnar eru í viðtalinu. Fyrsta útgáfa þýðingar DIAMOND viðtalsins og skimunarlistans er notuð í yfirstandandi rannsókn á árangri atferlisvirkjunarmeðferðar við þunglyndi. Gögn úr fyrsta hluta þeirrar rannsóknar voru notuð til að skoða samræmi í niðurstöðum viðtals og skimunarlistans, auk þess sem upplýsingar eru birtar um samræmi milli matsmanna. Alls komu 44 þátttakendur í matsheimsókn í fyrsta hluta rannsóknarinnar. Meðalaldur þátttakenda var 38,2 ár (Sf=11,9), þar af 20 karlar og 24 konur. Meðalfjöldi geðgreininga samkvæmt viðtali var 3,2 og var fjöldi greininga á bilinu ein til níu. Óháðir matsaðilar hlustuðu á upptökur tólf viðtala (27,3%) og var samræmi milli mats þeirra og niðurstöðu í matsviðtali gott, eða frá 83% fyrir greiningu alvarlegrar þunglyndisröskunar, upp í 100% fyrir greiningu þráhyggju-árátturöskunar. Algengustu geðgreiningarnar samkvæmt viðtali voru alvarleg þunglyndisröskun (56,8%), félagskvíðaröskun (47,7%), þrálát þunglyndisröskun (36,4%) og almenn kvíðaröskun (34,1%) og var samræmi í niðurstöðu viðtals og skimunar skoðað fyrir þessar fjórar geðgreiningar. Samræmi var gott þegar um röskun var að ræða samkvæmt viðtali en lélegt þegar tiltekin röskun var ekki til staðar samkvæmt viðtali, sem bendir til að skimunarlistinn hafi gott næmi (e. sensitivity) en litla sértækni (e. specificity) fyrir þessar fjórar geðgreiningar. Fyrirlögn DIAMOND geðgreiningarviðtalsins gekk almennt vel í þessari fyrstu rannsókn hér á landi. Úrtak rannsóknarinnar var lítið og tilgangur rannsóknarinnar leiddi til þess að fólk með þunglyndisvanda var í miklum meirihluta þeirra sem tóku þátt. Mikilvægt er að gögnum verði áfram safnað í stærri og fjölbreyttari úrtökum, til að athuga próffræðilega eiginleika DIAMOND geðgreiningarviðtalsins og samræmi milli niðurstöðu viðtals og skimunarlista.

Efnisorð

geðgreiningarviðtal sálfræðilegt mat skimun réttmæti áreiðanleiki

Vísir að færslu í heimildaskrá skv. APA sniði

Ragnar P. Ólafsson, Þórður Ö. Arnarson, Brynjar Halldórsson, Erla B. Birgisdóttir, Halla Ó. Ólafsdóttir, Heiða R. Guðmundsdóttir, Nína B. Arnarsdóttir, Pétur Tyrfingsson, Solveig E. Jónsdóttir og Sigurður Viðar (2025). Frumathugun á fyrstu þýðingu DIAMOND geðgreiningarviðtalsins og DIAMOND skimunarlistans fyrir fullorðna. Sálfræðiritið, 30, 18–34.
https://www.salfraediritid.is/articles/2025-issue-30-frumathugun-a-fyrstu-thydingu-diamond-gedgreiningarvidtalsins-og-diamond-skimunarlistans-fyrir-fullordna

Grein / texti í PDF skjali

PDF skjal opnast yfirleitt í nýjum flipa

Opna PDF