Kvíði og tilfinningavandi hjá börnum með kækjaraskanir
Ríkey Dröfn Ágústsdóttir og Dagmar Kr. Hannesdóttir
Sálfræðiritið, 2025 — 30. árgangur (bls. 6–17)
Útdráttur
Geð- og taugaþroskaraskanir hafa veruleg áhrif á líðan og daglega virkni barna og unglinga.
Kækjaraskanir eru meðal þessara raskana og geta valdið margvíslegum áskorunum í lífi barna.
Þrátt fyrir fjölda rannsókna er þekking okkar á þessum röskunum og samslætti þeirra enn takmörkuð. Markmið rannsóknarinnar var að kanna tíðni kvíðaraskana og umfang tilfinningavanda
hjá börnum sem greindust með kækjaraskanir þegar þeim var vísað í greiningarferli vegna
hugsanlegra taugaþroskafrávika og bera þau saman við börn í klínískum samanburðarhópi hér
á Íslandi. Þátttakendur voru 197 börn á aldrinum fimm til átján ára sem vísað hafði verið í greiningarferli til Þroska- og hegðunarstöðvar Heilsugæslunnar á árunum 2013 til 2022 og uppfylltu
greiningarviðmið fyrir kækjaraskanir. Samanburðarhópurinn samanstóð einnig af 197 börnum á
sama aldursári og börn úr klíníska úrtakinu. Byggt var á niðurstöðum staðlaðra greiningarviðtala
auk mats foreldra og kennara á tilfinningavanda barnanna. Helstu niðurstöður leiddu í ljós að börn
með kækjaraskanir höfðu marktækt hærri tíðni kvíðaraskana en börn í klínískum samanburðarhópi.
Þau voru jafnframt metin með meiri tilfinningavanda bæði af foreldrum og kennurum en börn í
samanburðarhópi. Einnig reyndist marktækur munur á mati foreldra og kennara á tilfinningavanda
barna með kækjaraskanir. Rannsóknin dregur fram mikilvægi aukinnar þekkingar á kækjaröskunum og samslátt við tilfinningavanda til að tryggja viðeigandi meðferð og bæta lífsgæði barna
sem glíma við kækjaraskanir.
Efnisorð
kækjaraskanir
börn og unglingar
tilfinningavandi
Vísir að færslu í heimildaskrá skv. APA sniði
Ríkey Dröfn Ágústsdóttir og Dagmar Kr. Hannesdóttir
(2025).
Kvíði og tilfinningavandi hjá börnum með kækjaraskanir.
Sálfræðiritið,
30, 6–17.
https://www.salfraediritid.is/articles/2025-issue-30-kvidi-og-tilfinningavandi-hja-bornum-med-kaekjaraskanir
Grein / texti í PDF skjali
PDF skjal opnast yfirleitt í nýjum flipa