Tíðni kvíðaraskana og tilfinningavanda á meðal íslenskra barna sem greinst hafa með áráttu- og þráhyggjuröskun
Margrét Halldórsdóttir og Dagmar Kr. Hannesdóttir
Sálfræðiritið, 2025 — 30. árgangur (bls. 54–67)
Útdráttur
Geðraskanir geta haft veruleg áhrif á flesta þætti daglegs lífs. Geðheilsa barna er því mikilvægur
grunnur að almennri vellíðan þeirra, aðlögun og þroska. Geðheilsa barna hefur farið versnandi
á heimsvísu undanfarin ár og viðeigandi úrræði eru oft takmörkuð. Áráttu- og þráhyggjuröskun
(OCD) er geð- og taugaröskun sem getur haft afgerandi áhrif á líðan og virkni barna. Þrátt fyrir
fjölda rannsókna er þekking á henni takmörkuð. Meginmarkmið rannsóknarinnar var að kanna
tíðni kvíðaraskana og stöðu tilfinningavanda meðal barna sem greindust með OCD þegar þeim
var vísað í greiningarferli vegna hugsanlegra taugaþroskafrávika, samanborið við börn í klínískum samanburðarhópi. Þátttakendur rannsóknarinnar voru 84 börn á aldrinum sex til sautján ára
sem vísað hafði verið í greiningarferli til Þroska- og hegðunarstöðvar heilsugæslunnar á árunum
2013 til 2022. Notast var við greiningarviðtöl og tilfinningavandi var metinn með kvarðanum
Spurningar um styrk og vanda (SDQ) sem bæði kennarar og foreldrar fylltu út. Helstu niðurstöður
leiddu í ljós að ekki reyndist marktækur munur á tíðni kvíðaraskana hjá börnum með OCD miðað
við börn í klínískum samanburðarhópi, þótt tíðni kvíðaraskana hafi verið há meðal barna með
OCD. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu jafnframt að ekki var marktækur munur á heildarstigum barna með OCD og barna í samanburðahópi á undirkvarðanum „Tilfinningavandi“, hvorki
samkvæmt mati kennara né foreldra. Að lokum reyndist munur á milli mats foreldra og kennara
á tilfinningavanda barna með OCD vera marktækur. Rannsóknin dregur fram mikilvægi þess að
aukin þekking á þessum röskunum
Efnisorð
áráttu-þráhyggjuröskun
OCD
börn
kvíðaraskanir
tilfinningavandi
SDQ
Vísir að færslu í heimildaskrá skv. APA sniði
Margrét Halldórsdóttir og Dagmar Kr. Hannesdóttir
(2025).
Tíðni kvíðaraskana og tilfinningavanda á meðal íslenskra barna sem greinst hafa með áráttu- og þráhyggjuröskun.
Sálfræðiritið,
30, 54–67.
https://www.salfraediritid.is/articles/2025-issue-30-tidni-kvidaraskana-og-tilfinningavanda-a-medal-islenskra-barna-sem-greinst-hafa-med-arattu-og-thrahyggjuroskun
Grein / texti í PDF skjali
PDF skjal opnast yfirleitt í nýjum flipa