ADHD meðal fullorðinna: Algengi núverandi einkenna árin 2005 og 2023, tíðni greininga og lyfjanotkun

Þórhildur Guðjónsdóttir og Daníel Þór Ólason
Sálfræðiritið, 2024 — 29. árgangur (bls. 41–55)

Útdráttur

Algengi ADHD (e. Attention-Deficit/Hyperactivity Disorder) hefur mikið verið rannsakað meðal barna og unglinga en þar sem áður var talið að fullorðnir glímdu ekki við þessa röskun eru færri rannsóknir til um algengi meðal fullorðinna. Helsta markmið þessarar rannsóknar var að skoða algengi núverandi einkenna ADHD meðal fullorðinna og voru niðurstöður fyrir árin 2005 og 2023 borin saman. Þar að auki var kannað hversu margir hefðu einhverntímann fengið ADHD greiningu hjá sálfræðingi eða geðlækni og tíðni lyfjanotkunar skoðuð. Að lokum voru skoðuð tengsl ADHD við menntunarstig, upplifaða streitu og depurðar- og kvíðaeinkenni. Þátttakendur voru Íslendingar á aldrinum 18-70 ára, valdir með slembivali úr þjóðskrá árin 2005 (n=3305) og 2023 (n=1640). Niðurstöður sýndu að algengi núverandi einkenna ADHD meðal fullorðinna Íslendinga var rúmlega fimmfalt hærra árið 2023 (8,6%) en það var 2005 (1,6%). Árið 2023 greindu 13,7% þátttakenda einnig frá því að hafa áður fengið greiningu á ADHD og voru 41,4% þeirra á lyfjum þegar rannsóknin var gerð. Hjá aðeins um helmingi þátttakenda sem voru á lyfjum (53,8%) hafði dregið það mikið úr einkennum að þau skimuðust ekki með núverandi einkenni ADHD út frá einkennalista. Þá benda niðurstöðurnar til jákvæðra tengsla ADHD við depurðar- og kvíðaeinkenni, aukna upplifaða streitu og lægra menntunarstig. Niðurstöður þessarar rannsóknar veita frekari innsýn í núverandi stöðu ADHD einkenna meðal fullorðinna hérlendis. Frekari rannsókna er þörf þar sem einnig er tekið mið af aldri við upphaf einkenna, hömlun af völdum einkenna og útilokun annarra geðraskana sem skýringu á einkennum.

Efnisorð

ADHD meðal fullorðinna einkennalisti um núverandi einkenni ADHD ADHD lyfjanotkun ADHD greining ADHD skimun

Vísir að færslu í heimildaskrá skv. APA sniði

Þórhildur Guðjónsdóttir og Daníel Þór Ólason (2024). ADHD meðal fullorðinna: Algengi núverandi einkenna árin 2005 og 2023, tíðni greininga og lyfjanotkun. Sálfræðiritið, 29, 41–55.
https://www.salfraediritid.is/articles/adhd-medal-fullordinna-algengi-nuverandi-einkenna-arin-2005-og-2023-tidni-greininga-og-lyfjanotkun

Grein / texti í PDF skjali

PDF skjal opnast yfirleitt í nýjum flipa

Opna PDF