Áhrif handleiðslu á meðferðartryggð: Að ná tökum á stýrðri kennslu Engelmanns (Direct Instruction) í lestrarkennslu

Guðbjörg Vilhjálmsdóttir og Zuilma Gabriela Sigurðardóttir
Sálfræðiritið, 2023 — 28. árgangur (bls. 7–24)

Útdráttur

Mælingar á frammistöðu þess sem veitir meðferð eru sjaldgæfar, bæði í rannsóknum og á vettvangi og því er lítið vitað um gæði framkvæmdarinnar á inngripinu. Með mælingum á meðferðartryggð fást upplýsingar um raunveruleg áhrif inngrips og slíkt eykur alhæfingargildi niðurstaða. Auk þess eru þær gagnlegar í praxís og halda framkvæmdaraðilanum trúum inngripinu. Í rannsókninni var skoðað hvort hægt væri að hafa áhrif á meðferðartryggð þriggja kennara í að beita aðferðum stýrðrar kennslu Engelmanns (Direct Instruction, DI) með reglulegri handleiðslu. Þeir kenndu lestur í fyrsta bekk. Margfalt grunnskeiðssnið yfir þátttakendur (multiple baseline across subjects) var notað til að meta áhrif handleiðslunnar. Handleiðslan samanstóð af þremur þáttum; endurgjöf, verklegri þjálfun og sýnikennslu. Allir þættir voru notaðir á sama tíma og því ekki greint á milli áhrifa hvers og eins. Meðferðartryggð kennaranna var mæld með mælitæki sem byggði á Corrective Reading Decoding Fidelity of Implementation Observation Checklist sem fengið var úr fyrri rannsókn Benner og félaga (2011). Allir kennararnir náðu settu viðmiði sem var 80% árangur og viðhéldu frammistöðu yfir tíma. Dregið var markvisst úr handleiðslu til kennara eftir að meðferðartryggð þeirra mældist yfir viðmiði þrisvar í röð án þess að það hafi komið að sök.

Efnisorð

lestrarkennsla meðferðartryggð stýrð kennsla margfalt grunnskeiðssnið handleiðsla endurgjöf

Vísir að færslu í heimildaskrá skv. APA sniði

Guðbjörg Vilhjálmsdóttir og Zuilma Gabriela Sigurðardóttir (2023). Áhrif handleiðslu á meðferðartryggð: Að ná tökum á stýrðri kennslu Engelmanns (Direct Instruction) í lestrarkennslu. Sálfræðiritið, 28, 7–24.
https://www.salfraediritid.is/articles/ahrif-handleidslu-a-medferdartryggd-ad-na-tokum-a-styrdri-kennslu-engelmanns-direct-instruction-i-lestrarkennslu

Grein / texti í PDF skjali

PDF skjal opnast yfirleitt í nýjum flipa

Opna PDF