Algengi líkamsskynjunarröskunar á Íslandi
Hrefna Harðardóttir, Arna Hauksdóttir, Heiðrún Hlöðversdóttir, Unnur Anna Valdimarsdóttir og Andri Steinþór Björnsson
Sálfræðiritið, 2020 — 25. árgangur (bls. 25–40)
Útdráttur
Líkamsskynjunarröskun (LSR; e. body dysmorphic disorder) er geðröskun sem einkennist af
þráhyggju um útlitsgalla sem er ekki til staðar. Þessum hugsunum fylgir mikil vanlíðan og skerðing
á virkni. Megintilgangur rannsóknarinnar var að (a) meta algengi LSR í almennu úrtaki á Íslandi og
(b) bera saman bakgrunn og klínísk einkenni þeirra sem skimast með LSR við þá sem skimast með
almenna kvíðaröskun (AKR) og þátttakendur sem ekki skimast með einkenni þessara geðraskana
(samanburðarhópur). Þátttakendur voru 854. Alls skimuðust 34 (4%) þátttakendur með LSR (88%
konur) og 50 (6%) með AKR (64% konur). Þátttakendur sem skimuðust með LSR voru líklegri til að
vera einhleypir, atvinnulausir og í veikindaleyfi eða öryrkjar en þátttakendur án LSR eða AKR. Þeir
sem skimuðust með LSR sýndu jafnframt fleiri einkenni þunglyndis og streitu en einstaklingar í
samanburðarhópi og voru líklegri til að hafa sjálfsvígshugsanir og að hafa gert tilraun til sjálfsvígs.
Að jafnaði var ekki munur á hópunum sem skimuðust með LSR og AKR en þó var hærra hlutfall
einstaklinga, sem skimuðust með LSR, sem hafði gert sjálfsvígstilraun. Niðurstöður benda til þess
að LSR sé algeng geðröskun í almennu þýði sem hafi margvísleg neikvæð áhrif á líf fólks. Það er
mikilvægt að auka þekkingu meðal almennings og heilbrigðisstarfsfólks á LSR, helstu einkennum
hennar og viðeigandi meðferð við röskuninni.
Efnisorð
líkamsskynjunarröskun
útlitsgallar
algengi
skimun
almenn kvíðaröskun
Vísir að færslu í heimildaskrá skv. APA sniði
Hrefna Harðardóttir, Arna Hauksdóttir, Heiðrún Hlöðversdóttir, Unnur Anna Valdimarsdóttir og Andri Steinþór Björnsson
(2020).
Algengi líkamsskynjunarröskunar á Íslandi.
Sálfræðiritið,
25, 25–40.
https://www.salfraediritid.is/articles/algengi-likamsskynjunarroskunar-a-islandi
Grein / texti í PDF skjali
PDF skjal opnast yfirleitt í nýjum flipa