Berskjöldun fyrir börn með kvíðaraskanir: Könnun meðal íslenskra sálfræðinga um notkun berskjöldunar í meðhöndlun kvíðaraskana hjá börnum og unglingum

Ástrós Elma Sigmarsdóttir, Hrafnkatla Agnarsdóttir, Aron Eydal Sigurðarson, Sindri Lárusson og Guðmundur Skarphéðinsson
Sálfræðiritið, 2019 — 24. árgangur (bls. 73–83)

Útdráttur

Berskjöldun (exposure) er gagnreynd aðferð til að draga úr hamlandi kvíða hjá börnum með kvíðaraskanir og hafa rannsóknir sýnt að hún sé áhrifaríkasti hluti hugrænnar atferlismeðferðar. Bandarískar rannsóknir benda til þess að berskjöldun sé vannýtt á klínískum vettvangi en staðan innan Evrópu er enn óljós. Tilgangur rannsóknarinnar var að kortleggja stöðu íslenskra sálfræðinga í notkun berskjöldunar við kvíðaröskunum barna (almennri kvíðaröskun, aðskilnaðarkvíða og félagskvíða). Önnur markmið rannsóknarinnar voru að meta viðhorf meðferðaraðila til berskjöldunar, þjálfun þeirra í beitingu aðferðarinnar og val á aðferðum í meðferð. Allir sálfræðingar innan Sálfræðingafélags Íslands fengu sendan spurningalista og til að geta tekið þátt þurfti viðkomandi að hafa meðhöndlað að minnsta kosti eitt barn á aldrinum fimm til 17 ára með kvíðaröskun sem aðalröskun á síðastliðnum 12 mánuðum. Samtals svöruðu 50 félagsmenn könnuninni. Í ljós kom að flestir þátttakendur voru með meistaragráðu og flestir unnu á heilsugæslustöð, Barna- og unglingageðdeild eða á einkarekinni stofu. Niðurstöður sýndu að langflestir nota HAM og berskjöldun (94%) til þess að meðhöndla börn og unglinga með kvíðaröskun. Einnig voru viðhorf gagnvart aðferðinni að öllu jöfnu jákvæð. Þrátt fyrir það virðist skorta þjálfun og innleiðingu á aðferðinni. Í samanburði við Bandaríkin virðist Ísland standa ágætlega hvað varðar notkun á berskjöldun þó svo að gæði aðferðinnar í meðferð séu óljós. Í framhaldi af þessari rannsókn væri gagnlegt að rannsaka meðferðarfylgni meðferðaraðila í því skyni að fá betri innsýn í það hvort verið sé að veita börnum á Íslandi meðferðarúrræði sem skilar árangri.

Efnisorð

hugræn atferlismeðferð berskjöldun kvíðaraskanir barna meðferðaraðilar gagnreyndar aðferðir

Vísir að færslu í heimildaskrá skv. APA sniði

Ástrós Elma Sigmarsdóttir, Hrafnkatla Agnarsdóttir, Aron Eydal Sigurðarson, Sindri Lárusson og Guðmundur Skarphéðinsson (2019). Berskjöldun fyrir börn með kvíðaraskanir: Könnun meðal íslenskra sálfræðinga um notkun berskjöldunar í meðhöndlun kvíðaraskana hjá börnum og unglingum. Sálfræðiritið, 24, 73–83.
https://www.salfraediritid.is/articles/berskjoldun-fyrir-born-med-kvidaraskanir-konnun-medal-islenskra-salfraedinga-um-notkun-berskjoldunar-i-medhondlun-kvidaraskana-hja-bornum-og-unglingum

Grein / texti í PDF skjali

PDF skjal opnast yfirleitt í nýjum flipa

Opna PDF