Efling foreldrafærni meðal flóttafólks: Er það fýsileg meðferðarnálgun við íslenskar aðstæður?
Alexía M. Jakobsdóttir, Margrét Sigmarsdóttir og Urður Njarðvík
Sálfræðiritið, 2021 — 26. árgangur (bls. 43–56)
Útdráttur
Flóttafólk er sístækkandi hópur í Evrópu sem glímir við mikið álag og áföll og býr því við þá
áhættu að þróa með sér aðlögunarvanda. Til að styðja við flóttafólk er mikilvægt að því standi til
boða gagnreynd úrræði. „Strengthening Parenting Among Refugees in Europe“ (SPARE) er úrræði
byggt á gagnreyndu meðferðinni „Parent Management Training – Oregon“ (PMTO) en verið er að
aðlaga SPARE að flóttafólki í Evrópu. Fjórar Evrópuþjóðir taka þátt í SPARE-verkefninu og í þessari
rannsókn er farið yfir tiltekin gögn frá tveimur hópum á Íslandi. SPARE þjálfar foreldra í að vera
kennarar barna sinna og hjálpa þeim að aðlagast nýju menningunni sem þeir tilheyra. Markmið
rannsóknarinnar, sem hér er greint frá, er að meta fýsileika SPARE miðað við tiltekin gögn og hópa
ásamt því að kanna hvort úrræðið bæti foreldrafærni, dragi úr aðlögunarvanda og auki vellíðan
foreldra. Þátttakendur voru alls 28, þar af 14 mæður og 14 feður sem höfðu öll stöðu flóttafólks á
Íslandi og áttu börn á aldrinum tveggja til átján ára. Foreldrar svöruðu spurningalistum í byrjun
og lok námskeiðs sem dreifðist á 12 skipti. Út frá þessum tveimur hópum og tilteknum gögnum
sýndu niðurstöður að SPARE er fýsilegt úrræði fyrir flóttafólk á Íslandi. Þátttakendur voru ánægðir
með úrræðið og var mæting og þátttaka góð. Foreldrafærni jókst og þá sérstaklega jákvæðar
uppeldisaðferðir, aðlögunarvandi minnkaði og foreldrar upplifðu það sem minna vandamál. Mat
foreldra á eigin vellíðan jókst en þó ekki marktækt. Þessar niðurstöður lofa góðu fyrir áframhaldandi
rannsóknir á úrræðum fyrir flóttafólk þar sem þörfin fyrir slík úrræði er mikil.
Efnisorð
foreldrafærni
gagnreynd úrræði
PMTO
flóttafólk
aðlögun
Vísir að færslu í heimildaskrá skv. APA sniði
Alexía M. Jakobsdóttir, Margrét Sigmarsdóttir og Urður Njarðvík
(2021).
Efling foreldrafærni meðal flóttafólks: Er það fýsileg meðferðarnálgun við íslenskar aðstæður?.
Sálfræðiritið,
26, 43–56.
https://www.salfraediritid.is/articles/efling-foreldrafaerni-medal-flottafolks-er-thad-fysileg-medferdarnalgun-vid-islenskar-adstaedur
Grein / texti í PDF skjali
PDF skjal opnast yfirleitt í nýjum flipa