Félagsleg ógn og áfallastreituröskun

Andri Steinþór Björnsson og Jóhann Pálmar Harðarson
Sálfræðiritið, 2025 — 30. árgangur (bls. 48–53)

Útdráttur

Í greiningakerfum er gert ráð fyrir að áföll séu tilteknir atburðir sem fólk þarf að hafa lent í til þess að geta greinst með áfallastreituröskun. Hið svonefnda viðmið A í DSM greiningakerfinu tilgreinir að þessir atburðir felist í lífshættu, alvarlegum líkamsmeiðslum eða kynferðisofbeldi. Deilt hefur verið um þetta viðmið í 45 ár og ýmsar rannsóknir hafa leitt í ljós að atburðir sem ná ekki viðmiðinu geta engu að síður leitt til áfallastreitueinkenna. Í þessari grein gagnrýnum við núverandi nálgun og leggjum til þá kenningu að áföll séu skynjuð ógn sem er einungis hægt að skilja með vísun í þróunarsögu okkar tegundar. Lífshætta er vissulega ein slík ógn. En önnur mikilvæg ógn er sú sem við köllum félagslega. Hún felst í því að upplifa mikla höfnun eða niðurlægingu. Hér er ekki um að ræða tvenns konar atburði, lífshættulega eða félagslega. Við eigum við lífsreynslu sem er afmörkuð, endurtekin og/eða samfelld yfir tiltekið tímabil, þar sem fólk upplifir ógn við líf, félagslega ógn eða hvort tveggja. Við segjum frá rannsóknum sem sýna fram á að félagsleg ógn er mun algengari en lífsógn og að báðar gerðir af ógn hafi svipuð áhrif á áfallastreitueinkenni. Áhrifin eru enn meiri þegar báðar gerðir af ógn leggjast saman. Það sem meira er, allir þátttakendur með áfallastreituröskun sögðu frá mikilli skynjaðri ógn, sem var yfirleitt félagsleg. Við rekjum í lokin hvaða áhrif þetta nýja sjónarhorn gæti haft á kenningar um þróun áfallastreituröskunar. Við leggjum jafnframt til hvernig hægt væri að meta áföll og áfallastreitueinkenni í klínísku starfi. Við köllum eftir frekari rannsóknum á félagslegri ógn og þætti hennar í þróun áfallastreituröskunar.

Efnisorð

áfallastreituröskun viðmið A lífsógn félagsleg ógn

Vísir að færslu í heimildaskrá skv. APA sniði

Andri Steinþór Björnsson og Jóhann Pálmar Harðarson (2025). Félagsleg ógn og áfallastreituröskun. Sálfræðiritið, 30, 48–53.
https://www.salfraediritid.is/articles/felagsleg-ogn-og-afallastreituroskun

Grein / texti í PDF skjali

PDF skjal opnast yfirleitt í nýjum flipa

Opna PDF