Fyrsti skynjunarsálfræðingurinn? Skynjunarsálfræði og hugfræði í Bók um ljósfræði eftir Ibn al-Haytham (Alhazen)
Árni Kristjánsson
Sálfræðiritið, 2018 — 23. árgangur (bls. 19–33)
Útdráttur
Við lestur rita um hugmynda- og vísindasöguna mætti halda að fáar merkar vísindauppgötvanir hafi verið
gerðar frá tímum forngrískra heimspekinga fram til endurreisnarskeiðsins og vísindabyltingarinnar sem
fylgdi í kjölfarið. Hið sama á gjarnan við þegar fjallað er um skynjunarsálfræði og hugfræði. Lítið er fjallað
um framlag merkra vísindamanna í Arabaheiminum á miðöldum til þeirra vísinda. Hér verður sjónum beint
að merkum rannsóknum og uppgötvunum Ibn Al-Haythams, eða Alhazens á latínu, (965–1040) sem hann
skýrði frá í Bók um ljósfræði. Hugmyndir Alhazens eru ótrúlega nútímalegar og verður vart til jafnað fyrr
en á 19. og 20. öld. Ein grundvallarhugmyndanna í nútímaskynjunarsálfræði er að heilinn skapi mynd
af heiminum með túlkun áreita sem berast skynfærunum. Alhazen hélt þessari hugmynd fram í Bók um
ljósfræði og gætu margar hugmynda hans verið teknar úr sálfræðibókum nútímans. En hann gekk lengra
og lagði til margar hugmyndir um úrvinnslu sjónáreita, svo sem hugmyndir um skiptingu í skynhrif og
skynjun, kenningar um sniðmát í hlutaskynjun, hlutverk minnis í sjónskynjun, skynjun þriðju víddarinnar
og mikilvægi athygli fyrir sjónskynjun. Hér er fjallað um þessar kenningar Alhazens og þær tengdar við
nútímahugmyndir í skynjunarsálfræði og hugfræði. Uppgötvanir Alhazens eru lítt þekktar og eiga að skipa
þann sess sem þeim ber í sögu sálfræðinnar.
Efnisorð
Alhazen
saga sálfræðinnar
íslömsk sálfræði
skynjunarvísindi
Vísir að færslu í heimildaskrá skv. APA sniði
Árni Kristjánsson
(2018).
Fyrsti skynjunarsálfræðingurinn? Skynjunarsálfræði og hugfræði í Bók um ljósfræði eftir Ibn al-Haytham (Alhazen).
Sálfræðiritið,
23, 19–33.
https://www.salfraediritid.is/articles/fyrsti-skynjunarsalfraedingurinn-skynjunarsalfraedi-og-hugfraedi-i-bok-um-ljosfraedi-eftir-ibn-al-haytham-alhazen
Grein / texti í PDF skjali
PDF skjal opnast yfirleitt í nýjum flipa