Gagnsemi CARS2-HF í skimun fyrir einhverfu í klínísku úrtaki barna og unglinga á Íslandi
Bryndís Lára Bjarnadóttir, Sigrún Kjartansdóttir og Dagmar Kr. Hannesdóttir
Sálfræðiritið, 2023 — 28. árgangur (bls. 25–38)
Útdráttur
Mikilvægt er að skima fyrir einhverfu hjá börnum þar sem markviss inngrip hafa mikið að segja
um framvindu þroska og stuðningsþörf í daglegu lífi. The Childhood Autism Rating Scale 2 – High
Functioning (CARS2-HF) er skimunartæki sem notað er á Íslandi til að skima fyrir einhverfu hjá
börnum á aldrinum 6 til 18 ára til að ákveða hverjum á að vísa áfram í ítarlegra greiningarferli.
Markmið rannsóknarinnar var að athuga hversu vel heildarskor á CARS2-HF spáir fyrir um
endanlega einhverfugreiningu í klínísku úrtaki íslenskra barna. Úrtakið samanstóð af börnum
sem hafði verið vísað í greiningarferli vegna gruns um einhverfu til Þroska- og hegðunarstöðvar
Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, á árunum 2017 til 2022. Alls voru 438 börn sem uppfylltu
viðmið rannsóknarinnar. Þar af voru 290 strákar og 148 stelpur. Niðurstöður gáfu til kynna að þeir
sem voru yfir klínískum mörkum á CARS2-HF voru líklegri til að fá endanlega einhverfugreiningu
óháð kyni. Marktækur aldursmunur var á greiningaraldri kynjanna, þar sem stelpum var vísað í
greiningarferli rúmu ári eldri en strákar. Lág til miðlungs fylgni var á milli heildarskors á CARS2-HF
og heildarskors Social Communication Questionnaire (SCQ), hjá strákum og stelpum. Hlutfallslega
fleiri stelpur en strákar voru metnar undir klínískum viðmiðum á CARS2-HF í hópi þeirra sem
fengu einhverfugreiningu. Niðurstöður eru ræddar út frá mikilvægi þess að þau börn komist að
í greiningarferli sem þurfa á því að halda en jafnframt að ekki sé verið að vísa fleirum í greiningu
en þörf er á.
Efnisorð
Childhood Autism Rating Scale (CARS2-HF)
einhverfuróf
börn og unglingar
kynjamunur
Vísir að færslu í heimildaskrá skv. APA sniði
Bryndís Lára Bjarnadóttir, Sigrún Kjartansdóttir og Dagmar Kr. Hannesdóttir
(2023).
Gagnsemi CARS2-HF í skimun fyrir einhverfu í klínísku úrtaki barna og unglinga á Íslandi.
Sálfræðiritið,
28, 25–38.
https://www.salfraediritid.is/articles/gagnsemi-cars2-hf-i-skimun-fyrir-einhverfu-i-klinisku-urtaki-barna-og-unglinga-a-islandi
Grein / texti í PDF skjali
PDF skjal opnast yfirleitt í nýjum flipa