Íslensk útgáfa Bergen kaupfíknikvarðans og sálfélagslegar skýringar á kaupfíkn
Ragna B. Garðarsdóttir og Fjóla Huld Sigurðardóttir
Sálfræðiritið, 2022 — 27. árgangur (bls. 61–77)
Útdráttur
Fræðimenn hafa ekki komist að niðurstöðu um bestu flokkun óeðlilegrar kauphegðunar, en flestir
eru sammála um að hún beri einkenni hegðunarfíknar. Þar til nýlega hefur óeðlileg kauphegðun
þó aðallega verið skilgreind og mæld sem áráttuhegðun eða hvatastjórnunarvandi. BSAS listinn
er hannaður til að bæta skort á mælitæki á kaupfíkn. Listinn er hugsaður sem skimunartæki, er
stuttur og metur sjö kjarnaþætti fíknar. Rannsóknir sýna ítrekað að efnishyggja - trúin á sálrænan
ábata neysluvarnings - ásamt annmörkum í sjálfsmynd fólks hafa sterk tengsl við kaupvanda.
Tilgangur þessarar rannsóknar var að a) kanna próffræðilega eiginleika og hugsmíðaréttmæti
íslenskrar útgáfu BSAS kvarðans, b) meta umfang kaupfíknar í stúdentaþýði, c) meta áhættuþætti
kaupfíknar og d) prófa tveggja þátta líkan Dittmar um kaupfíkn sem sameinar efnishyggju og
misræmi í sjálfsmynd. Spurningalisti var sendur með tölvupósti og svöruðu 624 háskólanemar
listanum. Niðurstöður sýndu að BSAS hefur góða próffræðilega eiginleika og fylgni við mælingar
sem ætlað var að meta hugsmíðaréttmæti. Miðað við þau greiningarviðmið sem höfundar BSAS
leggja til greinast 11,2% svarenda með kaupfíkn. Efnishyggja var sterkur áhættuþáttur fyrir
kaupfíkn og mótaði einnig samband sjálfsmisræmis við kaupfíkn, því efnishyggnara sem fólk var
því betur spáði sjálfsmisræmi fyrir um kaupfíkn, sem rennir stoðum undir tveggja þátta líkanið.
Höfundar álykta að BSAS kvarðinn gæti hentað vel til skimunar á kaupfíkn og ítreka mikilvægi
þess að sálfræðingar hafi efnishyggju í huga þegar kaupfíkn er meðhöndluð.
Efnisorð
sálmælingar
kaupfíkn
kaupárátta
sjálfsmisræmi
efnishyggja
Vísir að færslu í heimildaskrá skv. APA sniði
Ragna B. Garðarsdóttir og Fjóla Huld Sigurðardóttir
(2022).
Íslensk útgáfa Bergen kaupfíknikvarðans og sálfélagslegar skýringar á kaupfíkn.
Sálfræðiritið,
27, 61–77.
https://www.salfraediritid.is/articles/islensk-utgafa-bergen-kaupfiknikvardans-og-salfelagslegar-skyringar-a-kaupfikn
Grein / texti í PDF skjali
PDF skjal opnast yfirleitt í nýjum flipa