Kerfisbundið yfirlit yfir próffræðilega eiginleika Fjölþáttakvíðakvarða fyrir börn (Multidimensional Anxiety Scale for Children) í íslensku úrtaki
Theodóra Listalín Þrastardóttir og Guðmundur Ágúst Skarphéðinsson
Sálfræðiritið, 2019 — 24. árgangur (bls. 37–48)
Útdráttur
Fjölþáttakvíðakvarði fyrir börn (MASC) er skimunarlisti sem metur fjórar víddir kvíða, líkamleg
einkenni, flótta og forðunarhegðun, félagskvíða og aðskilnaðarkvíða/felmtur. Markmið eftirfarandi
rannsóknar var að meta próffræðilega eiginleika kvarðans í íslensku úrtaki með aðferðum
kerfisbundins yfirlits (e. systematic review). Leitað var kerfisbundið að greinum sem fjölluðu um
íslenskar rannsóknir á kvarðanum. Samtals voru 185 útdrættir skimaðir og að lokum voru 20
greinar valdar úr sem uppfylltu þátttökuviðmið. Meðaltöl og staðalfrávik voru svipuð og í erlendum
rannsóknum, hærri í klínísku úrtaki en almennu og stúlkur skoruðu almennt hærra á öllum þáttum.
Innra samræmi var viðunandi í öllum rannsóknum og í samræmi við erlendar rannsóknir, sem og
aðgreiningar- og samleitisréttmæti. Ein íslensk rannsókn skoðaði forspárréttmæti og notast var
við innlagnarúrtak á BUGL og voru niðurstöður í samræmi við erlendar niðurstöður að mestu leyti,
félagskvíðaundirþáttur MASC spáði fyrir um félagskvíðaröskun og undirþátturinn aðskilnaðarkvíði/
felmtur spáði fyrir um aðskilnaðarkvíðaröskun en þar sem úrtakið var innlagnarúrtak gefa
niðurstöður ekki eins skýra mynd og þær erlendu. Tvær íslenskar rannsóknir sýna að fjögurra
þátta lausn sé best fyrir íslenskt úrtak. Á heildina litið er kvarðinn áreiðanlegur og gagnlegur listi
sem fagfólk getur nýtt til að skima eftir kvíðaeinkennum hjá börnum og unglingum.
Efnisorð
fjölþáttakvíðakvarði
MASC
kerfisbundið yfirlit
próffræðilegir eiginleikar
íslensk börn
Vísir að færslu í heimildaskrá skv. APA sniði
Theodóra Listalín Þrastardóttir og Guðmundur Ágúst Skarphéðinsson
(2019).
Kerfisbundið yfirlit yfir próffræðilega eiginleika Fjölþáttakvíðakvarða fyrir börn (Multidimensional Anxiety Scale for Children) í íslensku úrtaki.
Sálfræðiritið,
24, 37–48.
https://www.salfraediritid.is/articles/kerfisbundid-yfirlit-yfir-proffraedilega-eiginleika-fjolthattakvidakvarda-fyrir-born-multidimensional-anxiety-scale-for-children-i-islensku-urtaki
Grein / texti í PDF skjali
PDF skjal opnast yfirleitt í nýjum flipa