Óútskýrð líkamleg einkenni: Yfirlitsgrein

Sigrún Ólafsdóttir, Jón Friðrik Sigurðsson og Paul Salkovskis
Sálfræðiritið, 2018 — 23. árgangur (bls. 67–76)

Útdráttur

Óútskýrð líkamleg einkenni eru einkenni sem eiga sér engar þekktar líffræðilegar orsakir. Þau eru mjög algeng og geta verið bæði þrálát og alvarleg. Þrálát óútskýrð líkamleg einkenni skerða lífsgæði, draga úr getu til að taka þátt í daglegu lífi og hafa í för með sér mikinn samfélagslegan kostnað. Hefðbundin læknismeðferð við óútskýrðum einkennum hefur ekki reynst árangursrík en sýnt hefur verið fram á árangur hugrænnar atferlismeðferðar við meðferð tiltekinna tegunda óútskýrðra líkamlegra einkenna. Þessari yfirlitsgrein er ætlað að fræða lesendur um óútskýrð líkamleg einkenni, tíðni þeirra, fylgniþætti og hvernig megi meðhöndla þau.

Efnisorð

óútskýrð líkamleg einkenni starfræn einkenni algengi lífsgæði starfsgeta hugræn atferlis­meðferð

Vísir að færslu í heimildaskrá skv. APA sniði

Sigrún Ólafsdóttir, Jón Friðrik Sigurðsson og Paul Salkovskis (2018). Óútskýrð líkamleg einkenni: Yfirlitsgrein. Sálfræðiritið, 23, 67–76.
https://www.salfraediritid.is/articles/outskyrd-likamleg-einkenni-yfirlitsgrein

Grein / texti í PDF skjali

PDF skjal opnast yfirleitt í nýjum flipa

Opna PDF