Próffræðilegir eiginleikar, samleitni og aðgreiniréttmæti Liebowitz Social Anxiety Scale og Social Phobia Weekly Summary Scale í íslenskum þýðingum

Guðmundur Arnkelsson, Elva Björk Þórhallsdóttir, Þuríður Hallgrímsdóttir Viðar, Inga Dröfn Wessman, Ólafía Sigurjónsdóttir, Auður Sjöfn Þórisdóttir, Jóhann Pálmar Harðarson og Andri Steinþór Björnsson
Sálfræðiritið, 2018 — 23. árgangur (bls. 103–112)

Útdráttur

Markmið rannsóknarinnar var að meta próffræðilega eiginleika félagskvíðakvarðanna Liebowitz Social Anxiety Scale (LSAS) og Social Phobia Weekly Summary Scale (SPWSS) í íslenskri þýðingu. Þátttakendur rannsóknarinnar voru 110 talsins, 56 greindir með félagsfælni (klínískur hópur) og 54 án geðraskana (samanburðarhópur). Niðurstöður rannsóknarinnar voru þær að innri áreiðanleiki LSAS-kvarðans var mjög góður bæði í klínískum hópi og samanburðarhópi og áreiðanleiki undirkvarða góður. Innri áreiðanleiki SPWSS-kvarðans var slakur í klínískum hópi og óviðunandi í samanburðarhópi. Samleitniréttmæti beggja kvarðanna var mjög gott gagnvart félagsfælnigreiningu og aðgreiniréttmæti var einnig mjög gott gagnvart greiningu á alvarlegu þunglyndi. Niðurstöður réttmætisathugana voru að mestu leyti í samræmi við fyrri rannsóknir og væntingar rannsakenda. Helstu ályktanir eru þær að próffræðilegir eiginleikar LSAS- og SPWSS-kvarðanna haldast að mestu leyti við íslenskra þýðingu.

Efnisorð

félagsfælni próffræðilegir eiginleikar Liebowitz Social Anxiety Scale Social Phobia Weekly Summary Scale

Vísir að færslu í heimildaskrá skv. APA sniði

Guðmundur Arnkelsson, Elva Björk Þórhallsdóttir, Þuríður Hallgrímsdóttir Viðar, Inga Dröfn Wessman, Ólafía Sigurjónsdóttir, Auður Sjöfn Þórisdóttir, Jóhann Pálmar Harðarson og Andri Steinþór Björnsson (2018). Próffræðilegir eiginleikar, samleitni og aðgreiniréttmæti Liebowitz Social Anxiety Scale og Social Phobia Weekly Summary Scale í íslenskum þýðingum. Sálfræðiritið, 23, 103–112.
https://www.salfraediritid.is/articles/proffraedilegir-eiginleikar-samleitni-og-adgreinirettmaeti-liebowitz-social-anxiety-scale-og-social-phobia-weekly-summary-scale-i-islenskum-thydingum

Grein / texti í PDF skjali

PDF skjal opnast yfirleitt í nýjum flipa

Opna PDF