Próffræðilegir eiginleikar Sheehan Disability Scale, Quality of Life Scale og Patient Health Questionnaire í íslenskri þýðingu
Andri Steinþór Björnsson, Karen Jónsdóttir, Signý Sigurðardóttir, Inga Wessman, Ólafía Sigurjónsdóttir, Auður Sjöfn Þórisdóttir, Jóhann Pálmar Harðarson og Guðmundur Arnkelsson
Sálfræðiritið, 2018 — 23. árgangur (bls. 91–100)
Útdráttur
Virkniskerðing, skert lífsgæði og þunglyndi hafa mikil áhrif á líf fólks og því er mikilvægt fyrir meðferðaraðila
og rannsakendur á Íslandi að geta reitt sig á áreiðanleg og réttmæt mælitæki sem meta þessa þætti. Í þessari
rannsókn voru próffræðilegir eiginleikar þriggja sjálfsmatskvarða í íslenskri þýðingu metnir. Þetta eru
Sheehan Disability Scale (SDS), sem mælir virkniskerðingu, Quality of Life Scale (QOLS), sem mælir
lífsgæði, og Patient Health Questionnaire (PHQ-9), sem mælir fjölda og alvarleika þunglyndiseinkenna.
Þátttakendur rannsóknarinnar voru alls 110, þar af 56 í klínísku úrtaki einstaklinga með félagsfælni
sem megingreiningu og 54 í almennu úrtaki einstaklinga án geðraskana. Tvö greiningarviðtöl voru lögð
fyrir þátttakendur, The Mini International Neuropsychiatric Interview (MINI) og Body Dysmorphic
Disorder Diagnostic Module (BDD-DM). Samleitniréttmæti kvarðanna SDS, QOLS og PHQ-9 var metið
með tilliti til félagsfælnigreiningar á MINI en samleitniréttmæti PHQ-9 var einnig athugað miðað við
þunglyndisgreiningu á MINI. Innri áreiðanleiki SDS var viðunandi (α = 0,7) fyrir klíníska úrtakið en góður
(α = 0,81) fyrir almenna úrtakið, viðunandi (α = 0,76) fyrir QOLS í klíníska úrtakinu en góður (α = 0,86)
í almenna úrtakinu, góður (α = 0,87) fyrir PHQ-9 í klíníska úrtakinu en sæmilegur (α = 0,66) í almenna
úrtakinu. Samleitniréttmæti kvarðanna var mjög gott sem kom fram í því að félagsfælnigreining á MINI
tengdist hærri stigafjölda á SDS og PHQ-9 en lægri stigafjölda á QOLS. Einnig spáði hærri stigafjöldi
á PHQ-9 fyrir um hærra hlutfall einstaklinga með þunglyndisgreiningu á MINI. Helstu niðurstöður eru
þær að próffræðilegir eiginleikar kvarðanna haldast að mestu leyti í íslenskri þýðingu. Félagsfælni virðist
draga úr lífsgæðum, auka líkurnar á þunglyndiseinkennum og hafa mikil og neikvæð áhrif á virkni fólks
sem greinist með hana.
Efnisorð
virkniskerðing
lífsgæði
þunglyndiseinkenni
félagsfælni
próffræðilegir eiginleikar
Vísir að færslu í heimildaskrá skv. APA sniði
Andri Steinþór Björnsson, Karen Jónsdóttir, Signý Sigurðardóttir, Inga Wessman, Ólafía Sigurjónsdóttir, Auður Sjöfn Þórisdóttir, Jóhann Pálmar Harðarson og Guðmundur Arnkelsson
(2018).
Próffræðilegir eiginleikar Sheehan Disability Scale, Quality of Life Scale og Patient Health Questionnaire í íslenskri þýðingu.
Sálfræðiritið,
23, 91–100.
https://www.salfraediritid.is/articles/proffraedilegir-eiginleikar-sheehan-disability-scale-quality-of-life-scale-og-patient-health-questionnaire-i-islenskri-thydingu
Grein / texti í PDF skjali
PDF skjal opnast yfirleitt í nýjum flipa