Sjálfsmatskvarðar Becks fyrir börn og unglinga: Kerfisbundið yfirlit yfir próffræðilega eiginleika íslenskrar útgáfu

Rebekka Björg Guðmundsdóttir, Rebekka Aldís Kristinsdóttir Valberg og Guðmundur Skarphéðinsson
Sálfræðiritið, 2019 — 24. árgangur (bls. 49–61)

Útdráttur

Markmið þessarar greinar var að kanna próffræðilega stöðu Sjálfsmatskvarða Becks fyrir börn og unglinga (BYI) í íslenskri útgáfu með aðferð kerfisbundins yfirlits (e. systematic review). Sjálfsmatskvarðar Becks samanstanda af fimm undirkvörðum með 20 atriðum hver, sem meta sjálfsmynd, kvíða, þunglyndi, reiði og hegðunarvanda hjá ungmennum á aldrinum 7-18 ára. Leitað var kerfisbundið að öllum rannsóknum sem lögðu kvarðana fyrir íslenskt úrtak í gagnagrunnum Google Scholar, PubMed og Skemmunnar og þær teknar saman. Alls fundust níu greinar og handrit sem fjölluðu um próffræðilega eiginleika kvarðanna. Niðurstöður gáfu til kynna gott innra samræmi á bilinu 0,71-0,96. Aðgreiningar- og samleitniréttmæti var óviðunandi þar sem meðal annars var há innbyrðis fylgni á milli undirkvarða BYI og fylgni við aðra lista sem mátu ólíkar hugsmíðar. Einnig bentu niðurstöður þáttagreiningar til þess að listinn aðgreindi ekki með fullnægjandi hætti á milli hugsmíðanna kvíða, þunglyndis og reiði, en niðurstöður íslenskra rannsókna hafa bent til þess að þessar þrjár hugsmíðir myndi saman einn þátt. Þessar niðurstöður eru í samræmi við erlendar rannsóknir, en helsti styrkleiki listans er mikið innra samræmi. Hins vegar er aðgreiningar- og samleitniréttmæti listans óviðunandi. Einnig er ekki vitað hvaða notagildi kvarðarnir hafa í klínísku úrtaki með tilliti til viðmiðsréttmætis og hvort kvarðarnir henti til að meta árangur meðferðar eða breytingar á einkennum yfir tíma. Próffræðilegir eiginleikar sjálfsmyndar- og hegðunarvandakvarða BYI meðal íslenskra rannsókna eru að mestu viðunandi til góðir. Hvað varðar kvíða-, þunglyndis- og reiðikvarða BYI getum við ekki mælt með notkun þeirra, hvorki í almennum né klínískum tilgangi en hins vegar mælum við með endurskoðun þessara þriggja undirkvarða.

Efnisorð

sjálfsmatskvarðar Becks skimun próffræðilegir eiginleikar börn unglingar

Vísir að færslu í heimildaskrá skv. APA sniði

Rebekka Björg Guðmundsdóttir, Rebekka Aldís Kristinsdóttir Valberg og Guðmundur Skarphéðinsson (2019). Sjálfsmatskvarðar Becks fyrir börn og unglinga: Kerfisbundið yfirlit yfir próffræðilega eiginleika íslenskrar útgáfu. Sálfræðiritið, 24, 49–61.
https://www.salfraediritid.is/articles/sjalfsmatskvardar-becks-fyrir-born-og-unglinga-kerfisbundid-yfirlit-yfir-proffraedilega-eiginleika-islenskrar-utgafu

Grein / texti í PDF skjali

PDF skjal opnast yfirleitt í nýjum flipa

Opna PDF