Störf sjálfstætt starfandi sálfræðinga í samkomubanni í mars og apríl 2020

Hafrún Kristjánsdóttir, Linda Bára Lýðsdóttir og María Kristín Jónsdóttir
Sálfræðiritið, 2020 — 25. árgangur (bls. 73–83)

Útdráttur

Í byrjun árs 2020 skall heimsfaraldur SARS-CoV-2 (COVID-19) skyndilega á í vestrænum ríkjum. Þann 28. febrúar greindist fyrsti Íslendingurinn með COVID-19 og í mars var sett á samkomubann hérlendis. Leiða má að því líkur að slíkur faraldur hafi áhrif á andlega líðan fólks en engu að síður hafa erlendar rannsóknir sýnt að áhrif fyrstu bylgju á líðan almennings voru ekki mikil. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna áhrif samkomubanns hér á landi í mars og apríl 2020 á störf sjálfstætt starfandi sálfræðinga. Alls tóku 98 sálfræðingar þátt í rannsókninni. Lagðar voru fyrir 36 spurningar sem sneru að eftirspurn eftir viðtölum, formi viðtala, mati sálfræðinga á líðan skjólstæðinga sinna og geðheilsu þjóðarinnar. Einnig var spurt um áhrif líðanar sálfræðinga á getu þeirra til þess að sinna meðferð og áhrif samkomubanns vegna COVID-19 á tekjur þeirra. Niðurstöður þessarar rannsóknar bentu til þess að eftirspurn eftir sálfræðiviðtölum hafi dregist saman í fyrstu bylgju faraldursins. Breyting varð á formi viðtala; viðtölum í lokuðu rými fækkaði en fjarviðtölum fjölgaði. Um þriðjungur sjálfstætt starfandi sálfræðinga taldi að geðheilsa skjólstæðinga sinna hefði versnað á tímabilinu. Mikill meirihluti taldi að COVID-19 myndi hafa áhrif á geðheilsu þjóðarinnar. Líðan sálfræðinga hafði, að þeirra mati, lítil áhrif á getu til þess að sinna meðferð. Vegna minni eftirspurnar lækkuðu tekjur hjá miklum meirihluta þátttakenda. Ljóst er að samkomubann í mars og apríl hafði áhrif á störf sálfræðinga. Ekki er vitað hvort samkomubann vegna þriðju bylgju COVID-19 muni hafa sambærileg áhrif og er frekari rannsókna þörf.

Efnisorð

SARS-CoV-2 COVID-19 sálfræðingar líðan fjarþjónusta

Vísir að færslu í heimildaskrá skv. APA sniði

Hafrún Kristjánsdóttir, Linda Bára Lýðsdóttir og María Kristín Jónsdóttir (2020). Störf sjálfstætt starfandi sálfræðinga í samkomubanni í mars og apríl 2020. Sálfræðiritið, 25, 73–83.
https://www.salfraediritid.is/articles/storf-sjalfstaett-starfandi-salfraedinga-i-samkomubanni-i-mars-og-april-2020

Grein / texti í PDF skjali

PDF skjal opnast yfirleitt í nýjum flipa

Opna PDF