Stýrifærnivandi barna: Tengsl BRIEF listans við aldur, kyn og ADHD einkenni
Hugrún Erna Erlingsdóttir, Anna Alexandra Helgadóttir og Dagmar Kr. Hannesdóttir
Sálfræðiritið, 2024 — 29. árgangur (bls. 25–40)
Útdráttur
Skilningur á stýrifærni er mikilvægur liður í því að ná utan um þroskaferil barna. Stýrifærni felur
meðal annars í sér sjálfsstjórn, hömlun, skipulag og yfirsýn, til að ná fram settum markmiðum
og gegnir því mikilvægu hlutverki í daglegu lífi. Tilgangur þessarar rannsóknar var að varpa ljósi
á birtingarmynd stýrifærnivanda eftir aldri og kyni ásamt tengslum við ADHD einkenni. Til þess
var framkvæmd rannsókn meðal 600 barna í 4.-10. bekk, þar sem foreldrar voru beðnir um að
svara Behavior Rating Inventory of Executive Functions (BRIEF) listanum. Börnin voru á aldrinum
8-15 ára, en stelpur voru 322 og strákar 274. Markmið rannsóknarinnar var að athuga aldursmun
á stýrifærnivanda og hvort kynjamunur kæmi fram á þáttum BRIEF listans. Jafnframt var gert ráð
fyrir að börn með meiri stýrifærnivanda væru með meiri ADHD einkenni á Ofvirknikvarðanum.
Niðurstöður sýndu marktækan mun á aldurshópunum en við nánari athugun var sá munur
einskorðaður við einn undirþátt BRIEF listans, Tilfinningastjórn. Niðurstöður sýndu marktækan
kynjamun og sýndu stelpur að meðaltali minni stýrifærnivanda á flestum þáttum BRIEF listans.
Börn með há skor á Ofvirknikvarðanum sýndu marktækt meiri stýrifærnivanda en börn með lág
skor, óháð kyni. Niðurstöður þessarar rannsóknar varpa ljósi á mynstur stýrifærnivanda barna á
ólíkum aldri, eftir kyni og tengslum hans við ADHD einkenni.
Efnisorð
stýrifærnivandi
BRIEF listinn
börn
aldurshópar
kynjamunur
Vísir að færslu í heimildaskrá skv. APA sniði
Hugrún Erna Erlingsdóttir, Anna Alexandra Helgadóttir og Dagmar Kr. Hannesdóttir
(2024).
Stýrifærnivandi barna: Tengsl BRIEF listans við aldur, kyn og ADHD einkenni.
Sálfræðiritið,
29, 25–40.
https://www.salfraediritid.is/articles/styrifaernivandi-barna-tengsl-brief-listans-vid-aldur-kyn-og-adhd-einkenni
Grein / texti í PDF skjali
PDF skjal opnast yfirleitt í nýjum flipa