Tengsl endurgjafar kennara og náms­ástundunar í einum skóla í Reykjavík

Birna Pálsdóttir og Zuilma Gabriela Sigurðardóttir
Sálfræðiritið, 2024 — 29. árgangur (bls. 7–23)

Útdráttur

Fjöldi rannsókna hafa sýnt að jákvæð endurgjöf kennara á nám auki hlutfall námsástundunar (t.d. Apter o.fl., 2010; Birna Pálsdóttir o.fl., 2019; Harrop og Swinson, 2000; Merret og Wheldall, 1987) og að neikvæð endurgjöf á félagslega hegðun dragi úr hlutfalli námsástundunar (t.d. Nafpaktitis o.fl, 1985; Sulla, 2015; Wheldall o.fl, 1989). Þessi rannsókn kannaði stöðu námsástundunar og náttúruleg hlutföll milli jákvæðrar og neikvæðrar endurgjafar til nemenda í einum íslenskum skóla í Reykjavík. Meðalnámsástundun í skólanum var 78,8%. Niðurstöður áhorfsmælinga gáfu einnig til kynna að kennarar virtust frekar nota neikvæða en jákvæða endurgjöf til þess að reyna að hafa áhrif á nám og hegðun nemenda. Auk þess fundust tengsl milli aukinnar námsástundunar og jákvæðrar endurgjafar á nám sem benti til þess að þegar kennarar veita nemendum sínum jákvæða endurgjöf á frammistöðu í námi þá eykst námsástundun þeirra. Marktæk neikvæð tengsl fundust milli neikvæðrar endurgjafar á félagslega hegðun og námsástundunar sem bendir til þess að eftir því sem neikvæð endurgjöf á félagslega hegðun er meiri því meira dregur úr námsástundun. Þessar niðurstöður eru í samræmi við niðurstöður fyrri rannsókna í enskumælandi löndum og á Ítalíu (Apter o.fl., 2010; Sulla, 2015) sem gerðar voru með sama mælitæki. Þessi rannsókn var sú fyrsta á Íslandi sem notaði sama mælitæki og er þörf á frekari rannsóknum hér á landi.

Efnisorð

námsástundun endurgjöf á nám jákvæð endurgjöf neikvæð endurgjöf atferlisgreining beint áhorf rannsóknir á námsástundun rannsóknir á endurgjöf

Vísir að færslu í heimildaskrá skv. APA sniði

Birna Pálsdóttir og Zuilma Gabriela Sigurðardóttir (2024). Tengsl endurgjafar kennara og náms­ástundunar í einum skóla í Reykjavík. Sálfræðiritið, 29, 7–23.
https://www.salfraediritid.is/articles/tengsl-endurgjafar-kennara-og-namsastundunar-i-einum-skola-i-reykjavik

Grein / texti í PDF skjali

PDF skjal opnast yfirleitt í nýjum flipa

Opna PDF