Tengsl óreiðu í heimilislífi og skjátíma við hegðunarvanda leikskólabarna
Liina Björg Laas Sigurðardóttir, Anna Sigríður Jóhannsdóttir og Urður Njarðvík
Sálfræðiritið, 2021 — 26. árgangur (bls. 25–42)
Útdráttur
Rannsóknir hafa sýnt að breytur tengdar heimilisumhverfi barna geta haft neikvæð áhrif á þroska
og hegðun barna á leikskólaaldri, m.a. skjánotkun og óreiða í heimilislífi (sjá t.d. Evans, 2006; Parkes
o.fl., 2013). Tilgangur þessarar rannsóknar var að athuga tengsl hegðunarvanda hjá íslenskum
leikskólabörnum við óreiðu í heimilislífi og skjátíma. Þátttakendur voru foreldrar 822 barna (4-6 ára;
410 drengir og 411 stúlkur) af öllu landinu sem svöruðu Spurningum um styrk og vanda (SDQ) og
Spurningalista um óreiðu (CHAOS), auk spurninga um skjátíma og bakgrunnsbreytur. Niðurstöður
sýndu að 7,7% barnanna mældust yfir klínískum mörkum fyrir hegðunarvanda og reyndist ekki
marktækur munur milli kynja. Skjátími barnanna var að meðaltali ein klukkustund á dag á virkum
dögum en tvær um helgar. Óreiða var marktækt meiri í heimilislífi barna með hegðunarvanda
(U = 31130,5 , p< 0,01), en ekki reyndist munur á skjátíma hópanna. Þrepaskipt marghliða aðfallsgreining sýndi að hjúskaparstaða foreldra, kyn barns og fjöldi barna á heimili hafði marktæk
heildaráhrif á hegðunarvanda en skýrihlutfall var lítið (F(3,807)= 3,66, p< 0,05; R2= 0,01). Þegar
óreiðu í heimilislífi var bætt við líkanið jókst skýrihlutfall líkansins upp í 11% (R2= 0,11). Í annarri
aðfallsgreiningu voru marktæk heildaráhrif þegar skjátíma var bætt við bakgrunnsbreyturnar
(F(4,806)= 3,82, p< 0,05; R2= 0,02). Í þriðju aðfallsgreiningunni sýndu niðurstöður hins vegar að
þegar stjórnað var fyrir áhrifum óreiðu og bakgrunnsbreytanna spáði skjátími ekki lengur fyrir
um hegðunarvanda. Niðurstöður benda til þess að óreiða í heimilislífi hafi sterkari tengsl við
hegðunarvanda íslenskra leikskólabarna en skjátími.
Efnisorð
hegðunarvandi
börn
leikskóli
óreiða í heimilislífi
skjátími
Vísir að færslu í heimildaskrá skv. APA sniði
Liina Björg Laas Sigurðardóttir, Anna Sigríður Jóhannsdóttir og Urður Njarðvík
(2021).
Tengsl óreiðu í heimilislífi og skjátíma við hegðunarvanda leikskólabarna.
Sálfræðiritið,
26, 25–42.
https://www.salfraediritid.is/articles/tengsl-oreidu-i-heimilislifi-og-skjatima-vid-hegdunarvanda-leikskolabarna
Grein / texti í PDF skjali
PDF skjal opnast yfirleitt í nýjum flipa