Þunglyndiskvarði fyrir börn (Children’s Depression Inventory)
Guðrún M. Jóhannesdóttir, Linda R. Jónsdóttir og Guðmundur Á. Skarphéðinsson
Sálfræðiritið, 2020 — 25. árgangur (bls. 57–71)
Útdráttur
Þunglyndiskvarði fyrir börn (e. Children‘s Depression Inventory (CDI)) er notaður til skimunar
á þunglyndiseinkennum barna og er í töluverðri notkun hérlendis. Markmið þessarar greinar
er að meta próffræðilega eiginleika kvarðans í íslenskum úrtökum með kerfisbundnu yfirliti. Af
2.873 heimildum, sem höfundar skimuðu, stóðu 28 heimildir eftir um próffræðilega eiginleika
CDI á Íslandi. Niðurstöður voru almennt svipaðar og erlendis. Eins og búast mátti við mældist
meðaltal hærra í klínískum úrtökum en almennum og stúlkur skoruðu hærra en drengir. Innra
samræmi heildartölu CDI var nokkuð hátt bæði í almennu og klínísku úrtaki. Samleitniréttmæti
kom vel út þar sem CDI var með háa fylgni við aðra þunglyndiskvarða en niðurstöður rannsókna
á aðgreiningarréttmæti voru ekki allar á sama máli þar sem fylgni CDI sýndi í sumum tilvikum
háa fylgni við kvíðakvarða en í öðrum lága fylgni. Í einni rannsókn með innlagnarúrtaki úr BUGL
kom í ljós að forspárréttmæti CDI var gott við alvarlega þunglyndisgreiningu DSM-IV en ekki við
þunglyndisgreiningu ICD-10. Niðurstöður tveggja leitandi þáttagreininga sýndu að atriði hlóðust á
þrjá þætti en ekki fimm eins og niðurstöður í stöðlunarúrtaki bentu til. Þörf er á frekari rannsóknum
á forspárréttmæti, til dæmis á heilsugæslustöðvum og á göngudeildarúrtaki á BUGL. Mikilvægt
er að kanna forspárréttmæti betur til að kanna notagildi til skimunar á börnum með þunglyndi.
Einnig er þörf á frekari rannsóknum á staðfestandi þáttagreiningu og engar rannsóknir fundust
á endurtektaráreiðanleika í íslensku úrtaki. Almennt virðast próffræðilegir eiginleikar CDI vera
viðunandi miðað við sambærilega kvarða sem notaðir eru hérlendis. Helstu styrkleikar eru innra
samræmi og hátt samleitniréttmæti.
Efnisorð
þunglyndiskvarði fyrir börn
þunglyndi
Children’s Depression Inventory
CDI
kerfisbundið yfirlit
próffræðilegir eiginleikar
íslensk börn
Vísir að færslu í heimildaskrá skv. APA sniði
Guðrún M. Jóhannesdóttir, Linda R. Jónsdóttir og Guðmundur Á. Skarphéðinsson
(2020).
Þunglyndiskvarði fyrir börn (Children’s Depression Inventory).
Sálfræðiritið,
25, 57–71.
https://www.salfraediritid.is/articles/thunglyndiskvardi-fyrir-born-childrens-depression-inventory
Grein / texti í PDF skjali
PDF skjal opnast yfirleitt í nýjum flipa